157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

markaðir fyrir sýndareignir.

228. mál
[17:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi sem felur annars vegar í sér tillögu um innleiðingu í íslenskan rétt á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um markaði fyrir sýndareignir, sem ég vísa hér eftir til sem MiCA-reglugerðarinnar, og hins vegar innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um upplýsingar sem eiga að fylgja millifærslu fjármuna og tiltekinna sýndareigna. Þetta er svokölluð TFR-reglugerð. Sambærilegt frumvarp var lagt fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Það er að mestu óbreytt nú að undanskildum þeim hluta sem varðar breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, þ.e. TFR-reglugerðinni. Breytingarnar má rekja til athugasemda Seðlabanka Íslands. Þá hefur verið tekið tillit til breytingartillögu meiri hluta nefndarálits efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Breytingunum er nánar lýst í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.

Forseti. Hér á landi er ekki heildstæð löggjöf um sýndareignir og er einungis að finna reglur um það í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. MiCA-reglugerðin setur skýrari ramma um viðskipti með sýndareignir og eykur neytendavernd. Með tilkomu reglugerðarinnar verður þjónustuveitendum sýndareigna jafnframt skylt að starfa á grundvelli starfsleyfis til að geta hafið starfsemi en fram til þessa hafa þeir einungis verið skráningarskyldir.

Aukin áhætta er talin stafa af sýndareignum og Evrópska kerfisáhætturáðið birti nýlega skýrslu þar sem m.a. er hvatt til þess að náið verði fylgst með vaxandi tengslum milli sýndareignageirans og hefðbundinnar fjármálastarfsemi.

Meginefni frumvarpsins er lögfesting MiCA-reglugerðarinnar og gerir frumvarpið ráð fyrir nauðsynlegum ákvæðum varðandi lögfestinguna, til að mynda heimildum Fjármálaeftirlitsins til eftirlits og upplýsingaöflunar og til þess að beita viðurlögum.

Frumvarpið felur einnig í sér lögfestingu TFR- reglugerðarinnar sem varðar löggjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og kveður m.a. á um skyldu þjónustuveitenda sýndareigna til að stuðla að rekjanleika millifærslna sýndareigna ásamt nauðsynlegum upplýsingum þeim tengdum. Þessi löggjöf er raunar á forræði dómsmálaráðuneytisins en vegna tengsla reglugerðanna tveggja komu ráðuneytin sér saman um að heppilegast væri að lögfesta TFR-reglugerðina í þessu frumvarpi.

Forseti. Með frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarkskröfur reglugerðanna kveða á um. Frumvarpið mun hafa minni háttar áhrif á eftirlitsgjald sem stendur undir starfsemi Fjármálaeftirlitsins en að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir teljandi áhrifum á fjárhag ríkisins.

Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.