157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

markaðir fyrir sýndareignir.

228. mál
[17:12]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið og tek undir með honum að það er mjög mikilvægt að íslenskum fyrirtækjum t.d. á þessu sviði, sem eru að sýsla með glænýja tækni sem tengist þessari bálkakeðju sem liggur til grundvallar Bitcoin og mörgum öðrum rafmyntum, sé búið eðlilegt umhverfi. Menn hafa nú lýst áhyggjum t.d. af ofvöxnu regluverki frá Evrópusambandinu á því sviði þannig að það er sannarlega rétt að hafa augun á boltanum.

Ég hefði hins vegar líka áhuga á að spyrja hæstv. ráðherra um það sem við ræddum nú, held ég, lauslega síðast þegar þetta frumvarp var til umræðu og ekki er vanþörf á því vegna þess að mig rámar í að svörin hafi verið tiltölulega hlutlaus. Þá er kannski hægt að vísa til þessara tveggja sviða, annars vegar hvort hæstv. ráðherra telji að það sé framtíð í Bitcoin bara almennt sem fjármálamaður, hvernig hann líti á fyrirbærið. Þar eru sannarlega skiptar skoðanir. Það eru menn sem hafa verið tengdir Seðlabankanum á Íslandi sem hafa sagt að þetta sé í raun og veru einskis virði þegar markaðsvirði eins Bitcoins er, held ég, 100.000 eða 110.000 dalir, eitthvað þar á milli. Það er sannarlega flökt á verðinu en engu að síður virðist markaðurinn meta þetta sem einhvers virði þótt aðrir sérfræðingar telji að það sé í raun og veru einskis virði. Hvert er mat fjármálaráðherra á þessu? Og í samhengi við þá spurningu: Telur hæstv. fjármálaráðherra óráð að t.d. íslenska ríkið ætti eitthvað smávægilegt í þessu ef virðið skyldi nú rjúka upp úr öllu valdi? Ég veit ekki með hvaða hætti það væri, en að vera með einhvern sparnað geymdan í þessari mynd, Bitcoin. Svo er hægt að nefna aðrar rafmyntir en það eru margir sem eru þeirrar trúar að Bitcoin sé eina málið í þessu og ég er síst af öllu sérfræðingur til að kveða upp úr um það.