verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulögum eða lögum um rammaáætlun eins og hún er almennt kölluð í daglegu tali. Ef ég byrja bara á því að reyna að draga saman í eina setningu hvað við erum að gera með þessu frumvarpi þá er það í meginatriðum tvennt: Annars vegar erum við að binda rammaáætlun við yfirlýstan vilja stjórnvalda til orkuöflunar og hins vegar erum við að laga rammaáætlunarferlið þannig að rammaáætlun virki og gangi hraðar fyrir sig.
Þetta mál er í öllum meginatriðum endurflutt frá síðasta þingi, með ýmsum breytingum, bæði þeim breytingum sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar lagði til á síðasta þingi en líka með ákveðinni grundvallarviðbót í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í orkumálum. Eins og kunnugt er hefur ferli rammaáætlunar reynst þungt í vöfum, tekið langan tíma. Pólitísk tregða til þess að leggja fram og afgreiða rammaáætlun með reglulegum hætti hérna á Alþingi og ónægt framboð virkjunarkosta í orkunýtingarflokki rammaáætlunar er á meðal orsaka þess hve hægt hefur gengið að koma af stað nýframkvæmdum á sviði orkumála. Eins og við þekkjum hefur skapast mjög alvarlegt ójafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á raforkumarkaði þar sem framleiðsla hefur ekki haldið í við vaxandi umsvif í samfélaginu. Núverandi ríkisstjórn hefur einsett sér að bæta úr þeirri stöðu og þá þurfum við bæði að horfa á fyrirkomulag rammaáætlunar og á leyfisveitingar almennt vegna virkjunarframkvæmda. Við þurfum að hrista mjög rækilega upp í hvoru tveggja en við þurfum líka að gera það sem við getum til að skapa einhverja lágmarkssátt um þessi mál í samfélaginu. Það hefur lengi ríkt togstreita milli þeirra sem vilja hraða orkuuppbyggingu og hinna sem vilja gæta varfærni þegar kemur að umhverfisvernd en tilgangur rammaáætlunarferlisins er auðvitað að reyna að tryggja ákveðið jafnvægi milli þess að vernda einstaka náttúru Íslands og að tryggja að það sé fyrir hendi nægt framboð af hreinni orku fyrir verðmætasköpun, fyrir atvinnuuppbyggingu, fyrir spennandi byggðaþróun um allt land og svo auðvitað vegna þeirra hröðu orkuskipta sem eru að verða og halda áfram og þá hvílir mjög rík samfélagsleg skylda á okkur að gæta þess að orkuöflun framtíðar fari fram á sjálfbæran hátt og í sátt við samfélagið. Þannig tryggjum við bæði skilvirkni og traust á þeim ákvörðunum sem eru teknar og þá þarf auðvitað lagalega umhverfið að styðja við þessi markmið og ferlið sjálft að taka mið af bestu fyrirliggjandi upplýsingum og rannsóknum þannig að faglegt mat liggi fyrir áður en meiri háttar ákvarðanir eru teknar og hagaðilar hafi upplýsingar og aðkomu að ferlinu. Þetta hefur ítrekað verið bent á, að það þarf að flýta ferlinu og um leið tryggja að það náist sátt um leikreglurnar. Ég held að það sé hægt að ná báðum þessum markmiðum, ég held að eitt útiloki ekki annað, að tryggja að fyrir liggi bestu mögulegu upplýsingar og auka skilvirkni áætlunarinnar og það er það sem við erum að gera með þessu frumvarpi.
Ég ætla að fara hér yfir helstu breytingarnar. Í fyrsta lagi legg ég til að mælt verði sérstaklega fyrir um það í raforkulögum að ráðherra leggi á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um öflun raforku. Ég lít svo á að þetta sé algjört grundvallaratriði til þess að skapa fyrirsjáanleika um raforkuframboð til framtíðar. Í dag er mælt fyrir um það í raforkulögum að ráðherra leggi fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku sem Landsnet byggir svo á við gerð kerfisáætlunar. En það er engin krafa um slíka stefnu eða slíka áætlun þegar kemur að raforkuframleiðslu. Það var auðvitað mótuð og kynnt orkustefna fyrir nokkrum árum, orkustefna til 2050. Þar er ekki vikið að því hvernig skuli staðið að orkuöflun, hvaða orkukosta skuli helst horft til eða hvernig stjórnvöld geti ýtt markvisst undir aukna raforkuframleiðslu. Við erum með ákveðnar framboðsspár sem eru hluti af orkuspárvinnu Landsnets og Umhverfis- og orkustofnunar en þegar kemur að orkuöflun til framtíðar þá eru það ekki bara hlutlægar spurningar um einhverja fastmótaða orkuþörf sem við stöndum frammi fyrir, stóra spurningin er kannski frekar hversu mikla orkuöflun við viljum ráðast í, hvers vegna og hvernig. Hver er orkuvilji stjórnvalda? Hver er orkuöflunarvilji ríkisstjórnar og Alþingis? Þetta eru spurningar sem velta á pólitískri afstöðu, pólitísku verðmætamati, þetta eru ekki bara hlutlægar spurningar um einhverja fastmótaða þörf heldur er þetta pólitík. Við verðum að svara þessum spurningum til að skapa fyrirsjáanleika á markaði, fyrir framkvæmdaraðila, fyrir sveitarfélög, fyrir alla áætlunargerð. Það skiptir máli.
Það sem ég legg svo til í þessu frumvarpi er að þessi orkuöflunarstefna stjórnvalda, sem er þá gert ráð fyrir að geymi töluleg orkuöflunarmarkmið sem væri hægt að hluta niður á mismunandi orkukosti, jafnvel niður á svæði að einhverju marki, verði svo ákveðið grundvallarplagg í rammaáætlunarferlinu, að bundið sé í lög að það sé horft til stefnunnar um öflun raforku, m.a. þegar verið er að flokka virkjunarkosti í rammaáætlun.
Þetta eru breytingar sem ég hef þegar kynnt í samráðsgátt. Þar mæltust þær nú frekar vel fyrir. Þar lagði t.d. Samorka, og fleiri aðilar reyndar, fram tillögu að viðbótum til að hnykkja enn betur á því atriði að taka eigi mið af orkuöflunarstefnunni í rammaáætlun. Ég tek bara undir þá tillögu að viðbót og við settum það inn í frumvarpið að það sé bæði mælt fyrir um samræmi við stefnu um öflun raforku í markmiðsákvæði rammaáætlunarlaganna og í 4. mgr. 3. gr. laganna, þannig að þetta er orðið mjög skýrt.
Ef við höldum svo áfram að fjalla um helstu breytingar þessa frumvarps þá vil ég kannski nefna að við erum að styrkja biðflokk rammaáætlunar sem raunverulegan biðflokk. Við erum að færa lýsingu á biðflokknum til samræmis við þá framkvæmd og þann skilning sem má kannski segja að hafi mótast frá setningu laganna. Ef við skoðum bara orðalagið í rammaáætlun í lögunum í dag er þar lögð megináhersla á að skortur á upplýsingum og gögnum sé forsenda þess að einhver virkjunarkostur sé flokkaður í biðflokk. En ég held að við getum alveg viðurkennt það að í gegnum tíðina hefur biðflokkurinn gegnt víðtækara og mikilvægara hlutverki sem úrræði þegar það næst ekkert endilega pólitísk sátt um að annaðhvort virkja einhvers staðar eða vernda eitthvað. Ég held við þurfum að horfast í augu við að það er ekkert alltaf endilega ástæða til að Alþingi njörvi það algerlega niður eða mæli fyrir um það til allrar framtíðar hvort einhvers staðar eigi að virkja eða hvort það sé ástæða til að fara eitthvert og friðlýsa viðkomandi svæði. Ég myndi segja að þetta sé í samræmi við kannski það verklag sem hefur að einhverju leyti mótast. Reyndar þegar horft er til baka og skoðuð lögskýringargögn frá því að verið var að setja lögin um rammaáætlun á sínum tíma þá sýnist mér að biðflokkurinn hafi að einhverju marki verið hugsaður svona þótt orðalagið á endanum leggi sérstaka áherslu í lögunum eins og þau eru í dag á óvissu þegar kemur að upplýsingum og gögnum, þannig að hér erum við að breyta þessu með einfaldri orðalagsbreytingu þannig að lögin endurspegli þessa framkvæmd.
Flestar hinna breytinganna í þessu frumvarpi byggjast á tillögum sem komu fram á síðasta kjörtímabili þar sem starfshópur Hilmars Gunnlaugssonar lögmanns, Bjartar Ólafsdóttur, fyrrverandi umhverfisráðherra, og Kolbeins Óttarssonar Proppé, fyrrverandi þingmanns, fór mjög rækilega yfir sögu rammaáætlunar og gerði ákveðnar breytingar sem eru til þess fallnar að styrkja framkvæmdina og gera kerfið skilvirkara. Sumar þessara breytinga skipta máli og skapa ákveðinn skýrleika, algerlega óháð því hvers konar ríkisstjórn er við völd hverju sinni og hver viljinn er til orkuöflunar. Aðrar breytingar eru kannski fyrst og fremst einhvers konar varnagli gegn því að stjórnvöld vanræki rammaáætlun eins og gerðist hérna á níu ára tímabili þar sem engin rammaáætlun var samþykkt á þingi, þrátt fyrir að lögin geri ráð fyrir að rammaáætlun sé lögð fram á fjögurra ára fresti og þá auðvitað afgreidd, þannig að það er hitt og þetta annað sem var líka í frumvarpinu þegar ég mælti fyrir því í vor og ég veit að málið fékk líka góða umfjöllun þá inni í umhverfis- og samgöngunefnd. Þarna eru atriði eins og bara það að tryggja að rammaáætlun sé meira samfelluverkefni frekar en að það sé tekinn fyrir alger haugur af virkjunarkostum og þeir komi allir inn í þingið á sama tíma.
Svo er mælt fyrir um aukna skilvirkni í ferlinu með tímafrestum á ýmsum verkþáttum og það eru tímafrestir sem í rauninni ná bæði til starfa faghópanna, verkefnisstjórnarinnar sjálfrar og til ráðherra. Svo er verið að fækka samráðsferlum eftir að tillaga verkefnisstjórnar liggur fyrir þannig að það verði eitt samráðsferli þar frekar en tvö. Ég sá ástæðu til að stytta samráðið sem krafist er þegar ráðherra ákveður að leggja til breytingu frá því sem verkefnisstjórn hafði lagt til.
Svo er frestur sveitarstjórna til ákvörðunar um landnotkun styttur og settar inn skýrari heimildir og skyldur til að afmarka verndarsvæði í áætluninni þar sem er líka búinn til ákveðinn sveigjanleiki þannig að það sé hægt að brjóta upp vatnasvið þegar verið er að afmarka þau vegna þess að eitthvað er — þá hefur verið sett samhliða því að lagt er til að eitthvað fari í verndarflokk. Þetta eru góðar breytingar og góð vinna sem var unnin af þessum starfshópi.
Eins er hér sérstaklega mælt fyrir um heimild ráðherra til að veita undanþágu til matsskyldra rannsókna á virkjunarhugmyndum vegna kosta sem eru í biðflokki, með ákveðnum skilyrðum, og að horft sé til umhverfismarkmiða í lögum um stjórn vatnamála fyrr í ferlinu, sem ég held að sé gott til þess að framkvæmdaraðilar lendi ekki bara á vegg síðar í ferlinu.
Með þessum breytingum stefnum við að því að bæta lagalegt umhverfi rammaáætlunar, skapa nauðsynlega samfellu, tryggja að ákvarðanir um vernd og nýtingu landsvæða byggist á bestu fáanlegu upplýsingum og faglegu mati en líka að ferlið sé ekki dragbítur á eðlilega framþróun í orkumálum. Rammaáætlun verður að virka og stjórnvöld verða líka að gefa skýr skilaboð um sinn orkuöflunarvilja og rammaáætlun að taka mið af því. Út á það gengur þetta mál.
Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.