157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[17:30]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð á þessu frumvarpi sem hefur margt gott og felur í sér margar breytingar sem eru jákvæðar. Ég vil þó draga fram við hæstv. ráðherra að auðvitað hefur meginseinkunin orðið vegna þess að það voru ekki teknar pólitískar ákvarðanir um rammaáætlun. Það hefur verið meginseinkunin. Ég hjó eftir því um daginn í ræðu ráðherra að hann velti fyrir sér af hverju fólk væri svona mikið að hugsa um fyrir hvað væri verið að virkja. Það er nátengt orkuöflunarmarkmiðinu sem hæstv. ráðherra fjallaði um hér. Ég held að það sé rosalega mikilvægt að hæstv. ráðherra átti sig á því að það hefur verið lykilspurningin vegna þess að fólk vill skilja þetta. Þegar við erum að virkja meira og við erum að fórna náttúru, fórna verðmætum — í hvað erum við að setja orkuna? Hvað erum við að fá í staðinn? Þetta er grundvallarspurning. Þetta er grundvallarspurning til að fólk átti sig á því að þó að það séu sett fram orkuöflunarmarkmið og ferlum hraðað þá er ekkert í núverandi regluverki sem tryggir það að einhver markmið stjórnvalda er varða byggðastefnu og annað náist.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í þetta: Hvernig eiga þessi orkuöflunarmarkmið að skila raunverulegri byggðastefnu t.d. eða atvinnutækifærum á landsbyggðinni? Á núverandi orkumarkaði búum við ekki við sömu aðstæður og áður þar sem farið var í ákveðnar framkvæmdir fyrir ákveðin tækifæri. Þar af leiðandi er leiðin milli nýtingar og fyrir hvað er nýtt óljósari. Þetta er mikilvægt mál, ekki síst þegar við horfum á stöðuna í dag. Við sjáum hversu viðkvæmt orkuumhverfið getur verið, bara ef við horfum á Grundartanga, Elkem og fleiri verkefni. Þessi umgjörð og hvernig þetta hélst í hendur, nýting og (Forseti hringir.) það hvaða iðnaðarstarfsemi byggðist upp, var ekki eitthvað sem gerðist sjálfkrafa. Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að hugsa um hinn endann, hvernig við byggjum upp með orkuöflunaráformunum?