157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[17:33]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa hugleiðingu. Ég held að lykillinn að svarinu liggi kannski í því, sem er svo sem minnst á í greinargerðinni, að við þurfum að tryggja samræmi milli fyrirhugaðrar atvinnustefnu stjórnvalda, raforkuöflunarstefnu og svo auðvitað markmiða okkar í loftslagsmálum og byggðamálum. Það hefur verið þannig lengi og hérna var auðvitað ríkisstjórn í landinu þar sem var t.d. ekki full samstaða um að það væri eftirsóknarvert að fá aukna orku fyrir t.d. gagnaversiðnað. Það skiptir máli núna þegar stóriðjan er að ganga í gegnum ákveðnar hremmingar, sjáum bara t.d. ástandið á Bakka og Grundartanga. Það skiptir mjög miklu máli að stjórnvöld tali skýrt um að það sé vilji til að afla aukinnar orku, m.a. til að standa undir uppbyggingu gagnaversiðnaðar og það sé eftirsóknarvert að gera það. Það er mjög orkufrek starfsemi og fjárfestar horfa m.a. til þess hverjar áætlanir þjóða eru. Þar dugar t.d. rammaáætlun ein og sér ekki til að skapa nauðsynlegan fyrirsjáanleika orkuframboðs á komandi árum. Þannig að það þarf þessa samfellu og þetta samræmi milli áætlanagerðar stjórnvalda þegar kemur að atvinnumálum almennt, þegar kemur að byggðamálum og loftslagsmálum sem skiptir máli. Hér skiptir auðvitað gríðarlegu máli að orkuöflunarstefnan skapi ákveðið akkeri fyrir rammaáætlunarvinnuna þannig að verkefnisstjórn geti litið til þess sérstaklega hver töluleg markmið stjórnvalda eru um aukna raforkuöflun, hvort sem það er á næstu 10 árum eða 20 árum.