verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kemur hér inn á réttarþróunina í Evrópu þar sem við sjáum m.a. tilskipanir þar sem mælt er fyrir um sérstök hröðunarsvæði fyrir uppbyggingu endurnýjanlegrar orkuvinnslu þar sem oft er gert ráð fyrir mjög skömmum frestum. Ég held að það sé mjög margt gott í Evrópuregluverkinu um orkumál sem við getum heimfært á íslenskar aðstæður og við munum auðvitað eða ég geri ráð fyrir því að ef þessi pakki ratar inn í EES-samninginn þá verði hann innleiddur hér. En við þurfum samt að huga sérstaklega að sérstöðu okkar. 40% ósnortinna víðerna í Evrópu eru á Íslandi. Þetta er alveg ótrúlegur fjársjóður sem við eigum hérna saman og m.a. þess vegna erum við með þetta séríslenska rammaáætlunarfyrirkomulag. Vil ég endilega taka upp, eins og hún kemur af kúnni, þessa Evrópunálgun um gríðarlega hraðar leyfisveitingar á ákveðnum svæðum? Nei, ekki endilega. Ég held að sums staðar sé gengið of langt miðað við þá hagsmuni sem við viljum vernda hér. Hins vegar er það gjörsamlega óþolandi og við getum ekki búið við það áfram að það taki kannski 12–15 ár að koma virkjunarframkvæmdum af stað, frá hugmynd og til framkvæmda. Við ættum miklu frekar að horfa til þess að það taki kannski fjögur til fimm ár frekar en 15–20 ár þannig að við þurfum svo sannarlega að taka til í þessum leyfisferlum okkar, bæði þegar kemur að rammaáætlun en ekki síður þegar kemur að öllu hinu. Ég hlakka til að koma með fyrir þingið stórt einföldunarfrumvarp í næstu viku, geri ég ráð fyrir.