157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[17:39]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir góða yfirferð. Mér sýnist þetta bara mjög áhugavert mál og auðvitað vorum við að fjalla um það á síðasta þingvetri, þó örlítið breytt. Ég ætla bara að segja það strax í upphafi að þó að ég sé ekki búinn að lúslesa þetta þá líst mér vel á þær breytingar sem verið er að gera og ég held að þær miði að því að auka orkuöflun og ég vona sannarlega að okkur takist það því okkur liggur á í þeim efnum.

Mig langar til að velta því aðeins upp við ráðherrann og bið hann að hugsa það með mér að þegar við erum búin að ákveða og komin fram með eitthvert stefnumið um hversu mikla orku við ætlum að framleiða eða bæta við, hvernig sér hæstv. ráðherra það samspil við núverandi ferli rammaáætlunar fyrir sér? Sér hann það fyrir sér þannig að þetta vegi einhvern veginn á móti faghópunum fjórum? Eða er það í rauninni þannig að verkefnisstjórnin sjálf tekur þetta viðmið upp og skoðar niðurstöður frá faghópunum í því ljósi?

Einnig langar mig til að velta öðru upp við hæstv. ráðherra af því að í gegnum tíðina er auðvitað búið að taka nokkuð marga kosti til skoðunar. Þegar maður fer yfir listann og horfir t.d. á, eigum við ekki að segja þau rök sem eru að baki því að ákveðnir virkjunarkostir eru settir í vernd, þá getur verið um töluverðan mismun á þeim að ræða hvað varðar verndargildi. Sér ráðherrann fyrir sér að mögulega gæti komið til þess, ef við þurfum virkilega mikið á raforku að halda, að það færi fram einhvers konar endurskoðun á þeim kostum sem mögulega hafa verið settir í vernd? Ég spyr í ljósi þess að það hefur ekki einn einasti virkjunarkostur verið friðlýstur samkvæmt lögunum alveg frá upphafi, sýnist mér.