157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[17:41]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta innlegg og gott ef þetta frumvarp leggst vel í þingheim og líka stjórnarandstöðuna. Hv. þingmaður spyr um tvennt. Annars vegar spyr hann hvar í rammaáætlunarferlinu þessi orkuöflunarstefna eða þetta orkuöflunarmarkmið komi helst til skoðunar. Ég myndi ætla, í ljósi þess hve faghóparnir eru oft með sértæk mál á sinni könnu, að það sé eðlilegast að það sé fyrst og fremst verkefnisstjórnin, og svo eftir atvikum ráðherra og Alþingi, sem horfir til þess að bera tillögur og þau gögn sem koma út úr ferlinu saman við orkuöflunarstefnu stjórnvalda og skoða samhengið þar á milli.

Hitt sem hv. þingmaður spyr um eru þeir kostir sem þegar hefur verið raðað í verndarflokk. Nú er það þannig, eins og hv. þingmaður veit, að þeir kostir sem Alþingi hefur þegar sett í verndarflokk hafa engir verið friðlýstir með lögformlega bindandi og réttum hætti en ég tel að það sé ekki æskilegt að fara að hræra sérstaklega í þeim kostum sem Alþingi hefur þegar samþykkt að fari í verndarflokk. Ég held að það sé ekki til þess fallið að auka sáttina í samfélaginu um þessi mál. Ég er líka sannfærður um það að þegar við leggjum niður fyrir okkur vænt orkuframboð og hvernig við viljum sjá hlutina þróast — þá erum við ekki bara að horfa á þá kosti sem koma í gegnum rammaáætlun, við erum líka að horfa á það t.d. að innan kannski 10–15 ára gæti vindorka á hafi verið orðin hagkvæmur kostur fyrir Ísland, við erum að horfa á smávirkjanir líka og við erum að vonast eftir miklum tækniframförum í jarðhitamálum. (Forseti hringir.) Þá finnst mér afar ósennilegt að við komumst í þá stöðu að við þurfum endilega að fara að endurmeta hvort ástæða sé til að vernda þá kosti sem þegar hafa verið settir í verndarflokk.