157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[17:44]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og góð svör og ég get tekið undir með honum að það liggi eiginlega beint við að það verði hlutverk Alþingis að taka ákvarðanir út frá þeirri orkuöflunarstefnu sem sett hefur verið hverju sinni og að verkefnisstjórnin glími við þessi afmörkuðu verkefni, að vera með faghópana o.s.frv. Þetta hefur verið svona aðeins erfitt í þeim skilningi því ef við horfum t.d. á faghóp fjögur sem hefur haft það hlutverk að reikna út, ekki beinlínis arðsemi heldur kannski frekar þann kostnað sem þarf við hvert megavatt, þá sýnist manni í mörgum rammaáætlunum, sérstaklega fyrri rammaáætlunum, að þetta hafi kannski ekki verið unnið nægilega skilvirkt í akkúrat þeim faghópi — gagnvart því ef við hefðum gögn sem yrði teflt í raun á móti verndarþættinum. Ég hef lúmskan grun um að eitthvað gæti hafa dottið á milli skips og bryggju, eitthvað sem hefði kannski átt að fá meiri athygli en raun bar vitni og hefði kannski frekar átt að koma til álita sem góður kostur.

En ég ætla líka að segja að ég er ánægður með að það skuli verða ofan á að við ákveðum að horfa með öðrum hætti til biðflokksins. Eins og hefur komið fram, m.a. í umsögnum Landsvirkjunar, þá sjáum við ekki fyrir okkur nákvæmlega framtíðina og því er kannski skynsamlegt að nota biðflokkinn meira og til þess að það geti gerst þarf að breyta lögunum.

Ég ætla að taka undir með ráðherranum, ég hlakka til að sjá það þegar verður farið að skoða vindorku á hafi. Ég held að það gæti orðið góður kostur og við ættum í rauninni að reikna með því jafnvel bara fyrr en seinna, ef við horfum á hvernig orkuverð er að þróast. Það gæti verið góður kostur fyrir Ísland.