verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Já, ég tek undir þetta. Eitt sem má auðvitað velta fyrir sér, og hefur svo sem komið upp eftir að ég fór með málið fyrir ríkisstjórn og fyrir þingflokka, er hvort þetta sé of skammur tími sem er mælt fyrir um í ákvæðinu um raforkuöflunarstefnu, hvort þetta ætti frekar að vera 20 ár eða 30 ár heldur en 10 ár vegna þess að 10 ár eru svo ofboðslega skammur tími þegar kemur að orkuöflun eins og við þekkjum. Eins og hv. þingmaður nefnir þá er alls kyns mjög spennandi þróun í gangi sem getur algerlega umbylt einmitt þörfinni fyrir framkvæmdir sem fela í sér stórfellda röskun á náttúruverðmætum og við verðum að horfa til þess þegar við erum að setja okkur svona stefnu til langs tíma.