verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég er mjög ánægður með að við skulum vera að taka hér til umfjöllunar breytingar á lögum um rammaáætlun, lögum sem voru sett 2011 og hafa í raun ekki reynst okkur vel og í engu samræmi við þær væntingar sem þingmenn höfðu þá, þvert á flokka, um það hvernig þetta myndi leiðast fram. Í lögunum voru gildrur sem okkur hreinlega sást yfir þegar við afgreiddum þessi mál í þverpólitískri sátt eftir mjög vandaða vinnu.
Það er margt ágætt í þessu frumvarpi sem er til mikilla bóta. Það er líka hægt að gera betur að mínu mati og mikilvægt að það sé gert og mikilvægt að við reynum að ná sátt um það að stíga enn frekari skref og nota þá þann samhljóm sem er í þinginu gagnvart þessum málaflokki núna sem er í sjálfu sér sögulegur. Þetta verður mjög mikil áskorun fyrir nefndina og mjög mikilvægt að góður tími sé gefinn til að fara vel yfir þetta mál.
Það segir í kaflanum um tilefni og nauðsyn lagasetningar, með leyfi forseta, að síðustu ríkisstjórnum hafi láðst að „leggja fram og afgreiða reglulega rammaáætlun á Alþingi og ónægt framboð virkjunarkosta í orkunýtingarflokki rammaáætlunar er á meðal orsaka þess hve hægt hefur gengið að koma af stað nýframkvæmdum á sviði orkumála.“
Það er vissulega alveg rétt. Rammaáætlun hefur allt of sjaldan séð dagsins ljós en þó var það, og það er kannski á pólitískum forsendum, á kjörtímabilinu 2013–2016 að hér voru lagðar fram mjög ákveðnar tillögur um annars vegar fimm kosti, fyrst held ég sjö eða átta kosti og síðan fimm kosti í nýtingarflokk í vatnsafli. Um fæsta þá kosti ætti að þurfa að vera mikill ágreiningur um. En það tókst ekki að koma því í gegn á þeim tíma og stjórnarandstaðan hafði mikið um það að segja hvernig þingstörfin gengu fyrir sig í þessu stóra máli þá. Það er auðvitað fagnaðarefni að verða vitni að þeim gríðarlegu umskiptum sem hafa átt sér stað hjá Samfylkingunni í þessum mikilvæga málaflokki vegna þess að Samfylkingin og Vinstri græn stóðu að gerð þessara laga á sínum tíma og voru síðan í stjórnarandstöðu þarna 2013–2016, unnu mikið eyðileggingarstarf og héldu fram fullyrðingum sem stóðust auðvitað enga skoðun. Á þeim tíma var nú hæstv. ráðherra að fikta í blaðamennsku ef ég þekki rétt, og ég man ekki eftir að hann hafi stigið fram með okkur orkunýtingarmönnum á þeim tíma þannig að hans sjónarmið hefur þá væntanlega breyst í samræmi við stefnu flokksins og því ber að fagna.
Þegar við vorum í stjórn með Vinstri grænum, sem var afleiðing af niðurstöðu kosninga, þá vann auðvitað stjórnarandstaðan mjög ötullega með einum stjórnarflokkanna í því að leggja stein í götu allra hugmynda um frekari framkvæmdir. En þá var einhver sem sagði við mig að ef og hefði væru í sjálfu sér ekki til og það er ágætt að hafa það kannski að leiðarljósi núna að horfa til framtíðar og reyna að ná þá þessari víðtæku samstöðu sem mér sýnist geta endurspeglast í þinginu núna.
Í kaflanum um meginefni frumvarpsins er farið víða. Þar er m.a. komið inn á það að ákveðið var í upphafi að hin íslenska verndar- og orkunýtingaráætlun yrði bæði áætlun um vernd og áætlun um nýtingu og þá vil ég segja það að upphaflega var þetta auðvitað hugsað, þessi hugmynd kemur fram á kjörtímabilinu 2003–2007 og svo 2007–2009, og þá er hugsunin sú að þetta muni fjalla eingöngu um nýtinguna. Það var uppleggið en þessu var síðan breytt í að verndin fékk í raun og veru miklu veigameira hlutverk. Það eru þættir í sjálfu sér sem er fjallað um í öðrum lögum, lögum um umhverfismat og náttúruverndarlögum o.s.frv. og ég held að það væri full ástæða til að skoða það og einfalda málið mjög mikið með því að skoða bara virkjunarkostina út frá þeim sjónarmiðum sem um þá eiga að fjalla og síðan fara þeir þá eftir þá vinnu inn í umhverfismat og frekari vinnslu. Ég held að það gæti einfaldað málið mjög mikið. Ég geri mér ekki í sjálfu sér neinar væntingar um að við náum að ganga svo langt núna í þessu skrefi en ég tel að það væri mikilvægt að horfa til þess.
Víða í Evrópu erum við með virkjanir sem fara ágætlega saman með vernduðum svæðum eða þjóðgörðum. Þar er verndarflokkurinn kannski í mörgum flokkum. Er þetta einhver allsherjarvernd eins og verndarflokkurinn hjá okkur snýst oftast um eða eru menn að vernda ákveðna hluta og fyrir ákveðnum verkefnum? Það er kannski það sem við þyrftum auðvitað að skoða líka. Við getum alveg séð fyrir okkur til að mynda virkjunarkost sem er lagður fram af þeim sem vilja óska eftir því að hann sé tekinn til meðferðar á vettvangi rammaáætlunar og gerir ráð fyrir lónsvirkjun einhvers staðar uppi á hálendinu, það er talið ganga of langt en rennslisvirkjun á sama stað, sem væri auðvitað þá minni í umsvifum og hefði minni umhverfisáhrif, gæti algerlega gengið. Það eru kannski þessi atriði sem við þyrftum að hafa til hliðsjónar líka þegar við erum að fjalla um þetta. Það er hægt að nefna hér t.d. virkjunarkost, ef virkjunarkost ber að kalla, sem er Kjalalda, hét áður Norðlingaölduveita. Umfjöllunin um þann kost, sem er jú veita til að nýta betur allar þær fjárfestingar sem eru til staðar, var að þetta næði upp í Þjórsárver og myndi stúta öllu þar o.s.frv. Við fórum hér, atvinnuveganefndin á sínum tíma, í heimsókn þarna upp eftir og þá var nú enn þá Norðlingaalda inni og staðreyndin var sú að frá hæsta yfirborði þá held ég að hafi verið 3 km loftlína inn í Þjórsárver. Síðan er búið að breyta þessum kosti og færa hann aðeins neðar í ána og hann er kominn enn fjær Þjórsárverum. Landsvirkjun er búin að leggja þetta upp með þeim hætti að þarna verði á sumrin fossarnir í fullri virkni en á veturna þegar fáir fara þarna þá verði það takmarkaðra. Þetta er af öllum sérfræðingum sem ég hef heyrt, eða mörgum, talinn hagkvæmasti kostur okkar í efnahagslegu og umhverfislegu tilliti. Þetta hefur mjög lítil áhrif á umhverfið en er algjör peningaprentvél fyrir samfélagið. Ég held að það sé mikilvægt að horfa til þessara þátta þegar við erum að stíga þessi skref núna. Hvaða vægi ætlum við að gefa efnahagslegum forsendum, þ.e. hagkvæmni, þar sem við fáum mest fyrir peningana, smíðum ódýrasta megavattið? Ætlum við ekki að láta það skipta neinu máli?
Í þessari greinargerð segir á einum stað að hugsunin hafi verið sú að ef teknar væru ákvarðanir um jafn afdrifarík málefni og meiri háttar raforkuframleiðslu í náttúru landsins þá lægju fyrir bestu fáanlegu upplýsingar og mat sérfræðinga á einstökum virkjunarhugmyndum. Svo segir aðeins neðar að þótt tilteknir faghópar hafi á tímabili ekki skilað einkunnagjöf og röðun eins og ráð var fyrir gert hafi það ekki skert gæði niðurstaðnanna, niðurstaðna verkefnisstjórnar um áhrif virkjunarkosta á umhverfið. Það var sem sagt allt í lagi að sleppa því sem sagði þó til um í lögunum að það átti að vera faghópur um efnahagsleg áhrif og um hagkvæmni. Það er mjög ítrekað farið yfir þetta í greinargerðinni með lögunum á sínum tíma en umhverfið var allt í einu orðið aðalatriðið, hitt orðin einhver aukaatriði og þessu þurfum við að breyta. Ég tel reyndar að frumvarpið gangi vel í þá átt en beini því til þingsins og nefndarstarfa að það verði horft til þessara þátta, að við tryggjum þetta.
Því er haldið fram að fyrst og fremst hafi ágreiningur verið á hinum pólitísku forsendum og það er alveg rétt. En hann var vissulega á tæknilegum forsendum líka. Ég man t.d. eftir því að hæstv. núverandi fjármálaráðherra var á sínum tíma skipaður formaður faghóps um efnahagsleg áhrif, hóps sem var reyndar einhverra hluta vegna skipaður mörgum mánuðum ef ekki bara upp undir ári seinna heldur en aðrir faghópar og átti síðan að skila bara niðurstöðu á nokkrum mánuðum. Í bókun, ef ég man rétt, þetta er nú svona aðeins eftir minni, á nefndarfundum kom fram að þetta væri mjög flókið verkefni að fara í og nánast útilokað að klára það. En þetta er svona dæmi um það að tæknilegar hindranir hafa líka þvælst fyrir okkur vegna þess að hvernig á að gefa virkjunarkosti heildareinkunn þegar þetta liggur ekki fyrir? En það var bara þannig í hugum margra að þetta skipti engu máli, þ.e. það sem var, held ég að ég fari rétt með, í norsku löggjöfinni á sínum tíma eitt aðalatriðið. Rammaáætlunin norska gekk út á það að reikna út hagkvæmnina við að stíga þessi skref; hvað kostar þetta, hvað við fáum fyrir peninginn? Það var svolítið forgangsröðunin í norsku rammaáætluninni.
Ég held að þetta sýni kannski líka að hluta til hvað ferlið er of flókið sem fyrsta skref. Það er kannski sú kjarnaskoðun sem ég var að vitna til áðan að væri þá ástæða til að fara í, að skoða hagkvæmnina, þjóðaröryggið, sem við skoðum bara akkúrat ekki neitt. Síðan við settum þessi lög á sínum tíma og í öllum þeim rammaáætlunum sem við höfum fjallað um þá lá ekki fyrir sú ógn sem er á náttúrunni og á Vatnajökuls-, Tungna- og Þjórsársvæðinu með mögulegum áhrifum frá jarðeldum sem tengjast Vatnajökli. Það setur í raun á okkur þær kvaðir að við verðum að horfa til þjóðaröryggis þegar við vinnum rammaáætlun. Þess vegna þarf nefndin núna og þinglega meðferðin að leiða til þess ef við förum þessa vegferð að við setjum inn hóp sem fjallar um þjóðaröryggi. Og hvað á hann að fjalla um? Hann á auðvitað að skoða hagkvæmnina, hvað þetta kostar, hvað er hagkvæmast út frá efnahagslegum forsendum, en hann þarf líka að skoða þetta alveg sérstaklega gagnvart orkuöryggi, þ.e. öryggi í orkuframleiðslu ef áföll dynja á. Þar ættu þá svæði sem eru utan þeirra svæða sem möguleg náttúruvá er á að njóta algjörs forgangs. Þau ættu að skora rosalega hátt. Þetta er bara gríðarlega mikilvægt fyrir okkur ef við kynnum okkur bara þá möguleika sem eru á áhrifunum á þetta stóra svæði þar sem við framleiðum mest af orkunni. Við erum búin að raða þessu á allt of lítinn hluta landsins. Þessa verðum við að horfa til.
Tíminn er að líða og það er hægt að tala um þetta lengi en framtíðin er í sjálfu sér óljós. Þegar við fjölluðum um þetta á sínum tíma þegar þessi lög voru sett þá þótti ekki taka því að fjalla neitt um vind eða sól vegna þess að það var svo fjarri okkur fyrir þetta fáum árum síðan að við ræddum það alveg að þetta yrði aldrei neinn möguleiki á Íslandi í samanburði við aðra virkjunarkosti sem við höfðum. Nú er öldin önnur og þetta er raunverulegt, þannig að framtíðin er óljós og við eigum auðvitað að horfa til hennar.
Ég vil leggja það til, virðulegur forseti, í ljósi þess hvernig ég hef talað hér og þess sem ég hef farið yfir, eins og í upphafi var gert og hefur ítrekað verið gert síðan þá, (Forseti hringir.) að málinu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar en ekki umhverfisnefndar vegna þess að þetta fjallar ekki um vernd. Þetta fjallar um nýtingu, þetta fjallar um verðmætasköpun í landinu, orkuöryggi og atvinnusköpun og byggðamál og það á heima að mínu mati hjá atvinnuveganefnd og ég óska eftir því, forseti, að það verði greidd atkvæði um það í þingsal.