157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[18:04]
Horfa

Sæunn Gísladóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég fagna þessu lagafrumvarpi hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhanns Páls Jóhannssonar. Orkuöryggi skiptir gríðarlega miklu máli um allt land og ekki síst í dreifðari byggðum landsins. Sérstök áhersla þarf því að vera á orkuöryggi og fyrirsjáanleika fyrir fjárfesta, almenning og atvinnulíf. Með orkuöflunarstefnu mun Ísland geta mótað vandaða og skýra nálgun í orkuöflun sem þjónar langtímahagsmunum þjóðar. Það skiptir máli að setja okkur stefnu um orkuöflun en slíkt er þekkt í nágrannalöndum á borð við Danmörku, Þýskaland og Finnland. Með frumvarpi þessu er verið að uppfylla kosningastefnu Samfylkingarinnar, nefnilega að leggja fram markmið um orkuöflun sem byggt er á við afgreiðslu rammaáætlunar. Við munum gæta jafnvægis milli orkunýtingar og náttúruverndar með rammaáætlun og tryggja um leið að virkjunarkostir í nýtingarflokki geti staðið undir markmiðum um orkuöflun, en til þess þarf að afgreiða rammaáætlun oftar á Alþingi og fjölga virkjunarkostum í nýtingarflokki í samræmi við tillögur verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Tölulegt markmið stjórnvalda um orkuöflun til 10 ára verður jafnframt að endurmeta á tveggja ára fresti en við erum að fylgja þessu eftir með lagabreytingum.