157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[18:05]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að fagna því að þetta frumvarp sé komið fram. Það er kannski ekki hægt að kalla það gamlan kunningja en stærstur hluti málsins var lagður fram á vorþingi, fékk umfjöllun í nefnd og ég sé ekki betur en að það hafi verið tekið mið af þeim breytingartillögum sem fram komu í nefndaráliti varðandi þá þætti sem flestir leiddu í raun af umbótastarfi frá síðasta kjörtímabili þar sem ákveðinn hópur fólks með víðtæka reynslu úr bæði stjórnmálum og á þessum vettvangi hafði gert tillögur um breytingar á einstaka liðum varðandi lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, svokallaðan ramma, en líka raforkulög. Að ýmsu leyti mæltist þetta býsna vel fyrir. Það eru bæði rök til þess að láta áform um virkjanir ná markvissar fram að ganga en líka vernd landsvæða sem okkur er treyst fyrir, búandi á Íslandi með þá náttúrufegurð og einstöku náttúru sem hér er að finna.

Í þessu máli hafa svo bæst við áform um að gera sérstaka áætlun um raforkuþörf og það að ráðherra leggi á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um öflun raforku til næstu tíu ára. Ég tók sérstaklega eftir því í fyrsta lagi að í raun eru lagagreinarnar býsna einfaldar hvað varðar þetta atriði sem er þó stórt í sjálfu sér, og eins hitt, sem raunar kom fram hjá ráðherra í máli hans áðan, að þarna er sett fram tillaga um að horfa til 10 ára sem er býsna stuttur tími í samhengi við orkuöflun. Ef við horfum tíu ár fram í tímann og lítum til framkvæmdaáætlana núverandi orkufyrirtækja þá má segja að verkefnin liggi nánast fyrir. Það væri þess vegna áhugavert, eins og ráðherra gaf upp boltann með, að velta fyrir sér hvort það ætti að horfa aðeins víðar í tíma en hugsanlega líka í orku.

Ég vildi bara nefna hér þá staðreynd að 65–70% þeirrar orku sem virkjuð er á Íslandi er varmaorka sem að stofni til er notuð til húshitunar en líka til jarðvarma. Þá eru rík rök fyrir því að það geti verið skynsamlegt að setja núna fram rökstudda framtíðarsýn um hvers þurfi að afla af varmaorku til húshitunar, ekki bara vegna þess að samfélagið er vaxandi heldur líka vegna þess að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur sett fram mjög áhugaverða sýn um það að leita að varmaorku á köldum svæðum þar sem hún kæmi að hluta til í staðinn fyrir raforku eða jafnvel bruna á jarðefnaeldsneyti. Eins er hitt eins og við höfum séð, t.d. á Reykjanesskaganum að undanförnu í ljósi náttúruhamfara, að okkar bíða stór verkefni, út frá sjónarmiðum um almannavarnir og náttúruvá, að hringtengja mikilvæg svæði. Það getur sannarlega átt við um Reykjanesskaga en það hafa líka verið settar fram þannig hugmyndir og sjónarmið varðandi höfuðborgarsvæðið. Þar erum við í raun með tvö ósamtengd kerfi, annars vegar heitt vatn sem kemur beint úr jörðu og hins vegar kalt vatn sem er hitað upp. Efnasamsetningin er ekki alveg sú sama. Þetta er tæknilega nokkuð flókið en það eru mikil almannavarnarök fyrir því bæði að sækja meira vatn úr jörðu, varma, og m.a. hefur það verið notað sem rök fyrir að virkja meiri jarðvarma í Krýsuvík eins og verið er að undirbúa núna en líka það að hringtengja þetta á höfuðborgarsvæðinu. Það getur skipt máli varðandi náttúruvá en líka varðandi aðra öryggis- og varnarhagsmuni eins og við getum ímyndað okkur að samfélagið er mjög viðkvæmt fyrir skemmdarverkum ef það eru fáar og stórar aðfærsluæðar varðandi þetta mikilvæga atriði eins og jarðvarma til húshitunar.

Þetta er eitthvað til að hugleiða og ég varpa þessu hér fram vegna þessa heildarsamhengis. Í því felst auðvitað sú skoðun að það er í grundvallaratriðum mikilvægt og gott að hafa sýn til lengri tíma vegna þess að þessi verkefni eru í eðli sínu mjög stór, þau eru kostnaðarsöm og það skiptir mjög miklu máli að taka réttar ákvarðanir. Þar getum við nefnt sem dæmi kerfisáætlun Landsnets, að það er mikilvægt að hafa áætlanir um flutningskerfi til langs tíma, líka til að geta rætt hvort þær séu skynsamlegar, krítisera þær vegna þess að fallinn kostnaður sem ekki nýtist í svona kerfum lendir auðvitað á samfélaginu í heild.

Ég held að við ættum líka að hugleiða að setja fingurinn á orku sem glatast eins og í núverandi kerfi. Matið er að í raforkuflutningskerfinu glatist allt að 4–7% raforku, m.a. vegna ástands flutningsnetsins. Það er eitthvað sem gæti komið inn í þessa áætlanagerð. Það getur líka átt við um hitaveiturnar og glatvarmann þar og hringtengingar í hitaveitum í þéttbýli eru að aukast núna býsna hratt og í raun meiri áhersla á að nýta vatn sem er ekki kannski með fullan hita en heitt engu að síður því að þetta er líka dýrmæt orka. Þó er ég ekki að mæla með því að við flækjum þetta þegar stóra verkefni en með því að hugsa það aðeins víðar og aðeins lengra þá held ég að við myndum á sjóndeildarhringnum, eins og ráðherra nefndi réttilega, sjá aðra orkuöflunarkosti sem hljóta að geta komið til skoðunar, eins og t.d. að afla vindorku við ströndina en ekki inni á víðernunum sem við höfum stundum rætt í þessum sal að gæti fórnað mjög miklum verðmætum sem eru einmitt það, víðernin sjálf.

Ég held að það verði mjög áhugavert að ræða þessi mál í nefndinni og hér áfram í þingsal. Það eru nefnd tvö viðmið fyrir þessa áætlanagerð í greinargerðinni sem er annars vegar orkuspá og hins vegar áætlanir Landsnets. Hvort tveggja hefur orðið fyrir býsna mikilli gagnrýni, og rökstuddri gagnrýni að hluta til, annars vegar varðandi það að í orkuspánni er m.a. gert ráð fyrir orkuskiptum þar sem tæknin er ekki að öllu leyti orðin til. Með því að horfa lengra fram í tímann væri engu að síður hægt að taka slíka þætti inn í myndina en ef við værum að horfa til skemmri tíma þá værum við að horfa á aðra hluti. Eins er varðandi spár Landsnets að þar eru settar inn eiginlega allar óskir fólks og fyrirtækja þannig að maður veltir aðeins fyrir sér samspilinu við rammaáætlun því að það er kannski á einhvern hátt spurning um eggið og hænuna, hvort rammaáætlun sé eggið eða hænan þegar raforkuöflunaráætlunin er annars vegar. Við viljum ekki hafa raforkuöflunaráætlun sem er óraunsæ miðað við þá kosti sem við höfum á sjóndeildarhringnum eða þá tækni sem er til en við viljum heldur ekki að orkuöflunaráætlun setji þrýsting á að fara með virkjanir inn á svæði sem þegar er búið að ákveða að vernda eins og ráðherra rakti eða þau svæði sem hafa verið metin mikilvægust út frá landslagi, fegurð og merkilegri náttúru og líffræðilegum fjölbreytileika samkvæmt mati í rammaáætlun. Þar erum við kannski í svolítið snúinni stöðu miðað við önnur lönd eins og í Evrópu sem hafa verið að gera svona raforkuöflunaráætlanir á undanförnum árum því að þar liggur í raun vinna fyrir varðandi mat á verndargildi og búið er að vernda t.d. undir Natura 2000 áætlun Evrópusambandsins gríðarlega stór svæði í Evrópu sem þessar metnaðarfullu áætlanir núna um græna orku gera ekki ráð fyrir að fara inn á nema þá með línulagnir eða eitthvað slíkt. Ég held að við verðum að máta okkur aðeins í þessu og reyna að átta okkur á því hvar við erum stödd í stærri mynd varðandi kortlagningu á verndargildi allra svæða og hvar raforkuöflunaráætlunin kemur þá inn í þá mynd og finna skynsamlega og raunhæfa leið sem virðir bæði sjónarmið, þá náttúru sem okkur er treyst fyrir en líka það sem við viljum virkja til raforkuframleiðslu og til varmaframleiðslu ef við förum þá leið að bæta því við.

Ég held að umhverfis- og samgöngunefndar bíði spennandi verkefni sem ég vona að verði góð umræða um og mikil þátttaka í innan nefndarinnar en auðvitað líka bara þess vegna í samfélaginu. Nú er ég kannski að gera mér of miklar væntingar um áhugann sem þetta mál mun vekja en það er aldrei að vita nema það verði einhver samfélagsleg umræða um þessa hluti því að ég held að ef ég get sagt eitthvað um þennan tíma sem maður hefur setið í umhverfis- og samgöngunefnd á þessu ári, að fá innsýn í raun öll þau gögn sem þó hafa orðið til á undanförnum tveimur áratugum eftir að rammaáætlun kom til en líka í raun þær áætlanir sem bæði orkufyrirtækin, Landsnet og aðrir hafa verið að setja fram, þá getur maður ekki eiginlega alveg skilið hvernig fólk gat fótað sig án þess að hafa þessi gögn varðandi það að taka þessar ákvarðanir hér áður en þau komu til.

Núna erum við að gera þessa ferla markvissari. Við erum að bæta við áætlun um raforku, hugsanlega varmavinnslu. Við erum þar með að koma inn með ný sjónarmið um fyrirsjáanleika þar en einnig held ég að við verðum að taka inn þessi öryggissjónarmið, bæði varðandi flutningskerfið í raforku og varma en líka landsvæðin. Það er ekki sjálfgefið að allt eigi að vera hluti af einu og sama kerfinu. Það geta líka verið ákveðin öryggisrök fyrir því að hafa hluta kerfanna hringtengdan á ákveðnum svæðum. Við sáum hvernig bilanir á Grundartanga slógu út öllum raftækjum á Norðurlandi, var það ekki einhvern veginn þannig? Sem vekur upp spurningar um hvort það þurfi að hafa í raun eitthvað sem kemur í veg fyrir að slíkt geti gerst bara á heilu og hálfu landsvæðunum og þá er maður kominn í öryggismál og vangaveltur um seigluna og áfallaþolið í samfélaginu.

Það er að mörgu að hyggja. Við leysum ekki allt í raforkuöflunaráætlun en ég held að hún geti kveikt bæði hugmyndir og umræðu um það hvernig við þurfum að horfa til lengri tíma, taka inn öryggissjónarmið, taka inn lífsgæði, taka inn hagkvæmni eins og hér hefur verið kallað eftir, því að allt kostar þetta peninga og einhver þarf á endanum að borga og allt á þetta að vera hluti af þeirri áætlanagerð sem fer fram og okkar bíður í raun það verkefni að útfæra kannski hvernig best er að sjá þetta fyrir sér.