verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Herra forseti. Ég ætla að þakka hv. þingmanni góða ræðu og margt áhugavert sem hann nefndi. Hann kom einmitt inn á þetta með varmaorkuna, sem ég held að skipti líka mjög miklu máli. Ég held að það sé mikið ósótt þar enn þá og ég held að það sé alveg tækifæri fyrir núverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til að leggja enn meiri áherslu á það. Þótt hann hafi verið duglegur og forveri hans reyndar líka þá held ég að þarna séu fólgin veruleg tækifæri og sérstaklega á köldum svæðum, að menn séu farnir að geta borað mun dýpra og það verði allt í einu raunhæft að þar gæti orðið nýting á varmaorku. Einnig vil ég nefna að tækni í varmadælum hefur líka breyst umtalsvert og ættum við kannski í rauninni nota meira af þeim heldur en gert er í dag.
Hér var líka farið aðeins yfir uppbyggingu á raflínum og ég held að það sé kannski stærsta verkefnið sem blasir við okkur, að ganga þannig frá dreifikerfinu okkar að við getum flutt raforkuna á milli landshluta, þó að ég sé alveg sammála því að auðvitað geti líka verið skynsamlegt að vera með ákveðnar sellur eða innan svæða þar sem er ákveðið að hringtengja og þarf í sjálfu sér kannski ekkert að vera endilega tenging út af því svæði.
Ég nefndi hér í samskiptum mínum við ráðherrann áðan varðandi það að taka kosti sem hafa verið settir í vernd á fyrri stigum, hvort það gæti verið möguleiki að endurskoða slíka kosti í ljósi þess t.d. að í dag erum við að tefla fram kostum sem hafa hærra verndargildi. Þótt þeir hafi líka hátt nýtingargildi hafa þeir hærra verndargildi heldur en t.d. gamlir kostir sem hafa farið í gegnum rammaáætlun. Þess vegna hef ég áhuga á að heyra af hverju menn eru svona feimnir við að taka mögulega upp slík atriði. Þó að ég viti að það sé viðkvæmt gagnvart mögulega einhverjum umhverfisverndarsamtökum þá er, ef maður horfir á samanburðinn á kostunum, augljóst að maður myndi fórna kosti sem hefði lægra verndargildi heldur en hærra.