verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar og get tekið undir mjög margt sem þar kom fram. Varðandi það að taka upp kosti sem þegar eru í vernd þá held ég að fólk sé almennt sammála um að náttúra landsins, eins og margar aðrar auðlindir, eigi bara eftir að aukast að verðgildi. Eftir því sem heimurinn í raun þróast, þroskast og dafnar, hin mannlega hönd byggir fleiri staði og kemur fleiru í verk þá sé ósnortin náttúra bara að fara að verða verðmeiri, þannig að ég held að það séu fleiri en ein hlið á þeim peningi.
Ef við speglum bandaríska umræðu hingað heim er kannski svolítið nærtækara að velta fyrir sér hvort þeir stórnotendur á orku sem nú starfa í landinu verði best borgandi kaupendur orku innan fárra ára. Þegar orkuþörf gervigreindar og þau háu verð sem gervigreindargagnaverin virðast vera tilbúin að borga, t.d. í Bandaríkjunum, eru annars vegar þá getur verið að þau séu þar alla vega að fara að ýta út stórnotendum og setja mikinn þrýsting á verð til heimila jafnvel og lítilla og meðalstórra fyrirtækja, þannig að allt er þetta hluti af umræðunni sem við verðum að taka. Hvernig ætlum við að standa með heimilum? Hvernig ætlum við að standa með atvinnulífinu í þessum heimi þar sem verður slegist um orkuna meira og meira en náttúran verður líka verðmætari?