verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir svörin. Það er alveg rétt að það eru auðvitað tvær hliðar á þessum peningi. Ég skil alveg að það sé viðkvæmni í því að taka upp kosti sem áður hafa verið settir í vernd en ég held að maður verði kannski að vera aðeins raunsærri í því t.d. að ef maður horfir á rammaáætlun í gegnum tíðina, þessa áfanga — nú er nýlega farinn af stað sjötti áfangi rammaáætlunarinnar — þá vil ég leyfa mér að meina að í eldri rammaáætlun hafi kostnaður eða arðsemi — ég held að það hafi hreinlega ekki verið gætt nógu vel að því að við skoðuðum þar þessa kosti sem undir voru. Það var einfaldlega of lítil áhersla á þann hluta rammaáætlunar að mínu mati. Ég held þess vegna að við gætum staðið frammi fyrir því að vera kannski með orkukost í dag sem hefur hátt verndargildi en er líka arðsamur kostur og við erum kannski komin á þann stað í orkuöflun hjá okkur að við erum í skuld og við viljum gjarnan ná að framleiða meira. Þá fyndist mér ekki ósanngjarnt að við myndum, sérstaklega því að það hefur engin vernd átt sér stað, hreinlega skoða hvort við værum þá ekki frekar tilbúin til að taka kost sem hefur í rauninni lægra verndargildi, jafnvel mun lægra, og kannski jafnvel hærri arðsemi eða minni kostnað heldur en þeir kostir sem við erum akkúrat að eiga við. Þess vegna held ég að við eigum ekki að útiloka, en ég skil alveg viðkvæmnina í því.
Ég næ nú sennilega ekki að koma fleiru að þannig að ég geymi þá bara spurningarnar fyrir nefndina. En ég hlakka til að eiga samskipti í nefndinni um þetta mál.