157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög.

229. mál
[18:30]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmönnum fyrir góða umræðu hér í kvöld. Ég þakka hv. þm. Sæunni Gísladóttur fyrir sína góðu ræðu. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni, það var margt gott sem hann benti á hér og hafði til málanna að leggja, kom til að mynda inn á sjónarmið varðandi þjóðaröryggismál og virkjanir utan eldvirkra svæða og þetta er eitt af því sem ég hef rætt sérstaklega um við formann nýrrar verkefnisstjórnar rammaáætlunar að sé ástæða til að horfa til í ríkara mæli. Ég er ekki endilega viss um að lykillinn að því sé að bæta við enn einum faghópnum. Ég held frekar að þetta sé kannski mál sem sá faghópur sem horfir á samfélagsmálefnin, samfélagsleg sjónarmið, ætti að skoða og hafa sérstaklega á bak við eyrað og svo kannski verkefnisstjórnin sjálf.

Hv. þm. Dagur B. Eggertsson flutti líka góða ræðu og benti á sitthvað og ég held að við séum sammála um að það sé full ástæða til að skoða að lengja þann tíma sem er horft til við þessa áætlanagerð þegar kemur að mótun stefnu um raforkuöflun. Hv. þingmaður minntist líka sérstaklega á varmaorkuna og þar er kannski ástæða til að geta þess að nýlega setti ég saman sérfræðingahóp um mótun jarðhitastefnu fyrir Ísland þar sem er horft til ársins 2050. Sá hópur mun móta eins konar jarðhitavegvísi, eins og við köllum, þar sem verður bæði horft til þess hvernig sé hægt að auka vinnslu á krefjandi svæðum og horft til tækniframfara þegar kemur að raforkuframleiðslu á grundvelli jarðvarma þar sem er margt mjög spennandi í farvatninu. Ég held að í staðinn fyrir að við förum endilega að grauta saman stefnu um raforkuöflun og varmavinnslunni þá sé þetta kannski meira eitthvað sem þurfi að samþætta og horfa til, að í raforkuöflunarstefnu mætti horfa sérstaklega til þátta eins og varmavinnslu sem er að fara að leysa rafhitun á köldum svæðum af hólmi. Það dregur þá úr þörf á raforkuöflun. Það sama gildir um glatvarma t.d. og reyndar gildir það sama um orkunýtni almennt, mér þætti ekki óskynsamlegt að setja einhvers konar viðmið eða markmið um orkunýtni í svona stefnu.

Talandi um orkunýtni, bara þessi milljarður sem við settum núna í jarðhitaleit á köldum svæðum — Umhverfis- og orkustofnun mat sérstaklega ávinninginn af þessum fjárfestingum og telur að þær muni spara sem nemur allri raforkuvinnslu Orkubús Vestfjarða á hverju ári. Þetta er alveg ótrúlegur ávinningur. Einmitt þess vegna erum við að halda áfram á þessari vegferð og undirbúa nýtt jarðhitakall áður en árið er á enda þar sem við horfum í raun kannski enn lengra og horfum á enn stærra samhengi, erum ekki bara að styrkja leit og nýtingu á jarðhita vegna húshitunar, vegna hitunar heimila, heldur líka til verðmætasköpunar og að styðja við tækniþróun sem er þá í samræmi við markmið sem er lagt upp með þegar ég stofnaði þennan hóp um jarðhitavegvísi, að stjórnvöld stígi í raun inn með dálítið afgerandi hætti til að verja og styrkja enn frekar samkeppnishæfni Íslands þegar kemur að nýtingu jarðhita þar sem við höfum náð svo gríðarlegum árangri nú þegar. En við getum alveg helst úr lestinni ef við erum værukær. Við þurfum alltaf að leita leiða til að halda áfram að reyna að stíga stór skref í þessum efnum og viðhalda samkeppnishæfni okkar og styrkja hana enn frekar. Þetta mun auðvitað hjálpa okkur þegar kemur að því að afla orku almennt og dregur þá að einhverju leyti úr einmitt þörfinni fyrir raforkuvinnslu sem myndi ellegar kalla á röskun á náttúruverðmætum. Þannig að það er þetta heildarsamhengi sem ég er að vona að við eigum þá góða og djúpa umræðu um þegar kemur að því spennandi verkefni að móta svona raforkuöflunarstefnu til framtíðar.

Að því sögðu þakka ég fyrir umræðuna í kvöld.