157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Arna Ír Gunnarsdóttir (Sf):

Forseti. Kostnaður samfélagsins vegna afleiðinga áfalla í barnæsku er gríðarlegur og er áætlaður um 100 milljarðar kr. árlega. Afleiðingar áfalla eru alvarlegar fyrir þau börn sem fyrir þeim verða, sérstaklega þegar um endurtekin áföll er að ræða. Kostnaður vegna áfalla kemur m.a. fram í auknu álagi í heilbrigðiskerfinu, aukinni lyfjanotkun, auknu álagi í löggæslu, í dómskerfi og í fangelsismálum, auknum útgjöldum vegna greiðslna úr bótakerfum, eins og t.d. vegna örorkubóta, atvinnuleysisbóta, húsnæðisbóta og sjúkradagpeninga, auknu álagi í mennta- og félagskerfi vegna mikilla stuðningsþarfa, vanlíðunar, eineltis og fleiri þátta ásamt lægri skatttekjum til ríkis og sveitarfélaga vegna skertrar getu til þátttöku á vinnumarkaði.

Því fyrr sem við grípum inn í líf barna, því betra. Það er betra að fjárfesta á fyrstu fimm árunum í lífi barns heldur en að slökkva elda á síðari stigum. Það skilar sér margfalt að aðstoða barn í 1. bekk heldur en í fangelsi síðar meir. Ávinningur samfélagsins af því að setja farsæld og velferð barna í algjöran forgang er ótvíræður. Til að ná sem bestum árangri þarf að tengja öll þau kerfi sem sinna þjónustu við börn enn betur saman, brjóta niður múra og ryðja úr vegi þeirri sílóhugsun sem of oft ríkir milli kerfanna. Það þarf að bora göngin sem vantar á milli kerfanna og breikka allar einbreiðu brýrnar og tryggja þannig að sú fjárfesting sem við erum þegar að setja inn í kerfin okkar skili sér til barnanna og fjölskyldna þeirra. Markmiðið á alltaf að vera að tryggja að hvert einasta barn fái þann stuðning sem það þarf þegar það þarf á honum að halda. Öflug samstaða um farsæld mun tryggja að öll sú fjárfesting sem þegar er sett inn í kerfin skili sér miklum mun betur til barnanna okkar.

Forseti. Ég skora á okkur öll sem vinnum að farsæld barna að opna hugann og yfirstíga hindranir svo að við saman náum að nýta alla okkar þverfaglegu þekkingu til hins ýtrasta í átt að farsælla samfélagi fyrir börn á Íslandi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)