Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nýverið var kynntur fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar og langar mig að ræða aðeins þær aðgerðir sem þar koma fram og munu gagnast ungu fólki og fyrstu kaupendum. Sá hópur hefur átt hvað erfiðast uppdráttar á húsnæðismarkaðnum eins og hann er í dag. Með pakkanum er ríkisstjórnin að auka framlög í hlutdeildarlánakerfið um 1,5 milljarða ásamt því að gera kerfið skilvirkara með því að greiða út slík lán mánaðarlega og rýmka þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að geta fengið lánin. Þá er ríkisstjórnin að breyta séreignarsparnaðarleiðinni með þeim hætti að hún er nú réttur allra til 10 ára. Það skiptir miklu máli fyrir þá sem eru að reyna að koma sér inn á húsnæðismarkaðinn og geta þannig nýtt sér þessa leið til útborgunar eða niðurgreiðslu á höfuðstól lána. Ríkisstjórnin er að auka framboð á íbúðum með því að standa að uppbyggingu á um 4.000 nýjum íbúðum í Úlfarsárdal sem verða margar hverjar sérstaklega sniðnar fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.
Ríkisstjórnin er líka að auka stofnframlög til óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga sem bjóða upp á ódýrari og öruggari leigukost á meðan fólk er að safna sér fyrir útborgun í íbúð og hún er að leggja meiri pening í að byggja íbúðir fyrir námsmenn. Pakki ríkisstjórnarinnar ýtti svo á aðgerðir hjá Seðlabankanum sem rýmkaði lánþegaskilyrði þannig að fyrstu kaupendur geta nú fengið 90% lán og heimild til að veita lán umfram hámarksgreiðslubyrði var hækkuð.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki tæmandi upptalning en hún sýnir að hér er við völd verkstjórn sem vinnur fyrir fólkið í landinu. Það er meira á leiðinni.