157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:09]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um grunnskóla. Með frumvarpinu er lagt til að mennta- og barnamálaráðherra fái skýrar heimildir til að kveða á um reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum og í frístundastarfi. Frumvarpið er liður í innleiðingu menntastefnu til ársins 2030, sbr. ályktun þingsins nr. 16/151. Ein af fimm stoðum menntastefnunnar er hæfni fyrir framtíðina þar sem m.a. er lögð áhersla á stafræna tilveru. Á grundvelli þingsályktunartillögunnar hefur verið unnin aðgerðaáætlun um menntastefnu fyrir árin 2025–2027. Þar á meðal er aðgerð um námsumhverfi barna og ungmenna sem ætlað er að styðja við nám og farsæld. Aðgerðin á að stuðla að mikilvægi þess að skoða þætti sem hafa áhrif á náms- og félagsumhverfi með því m.a. að samræma reglur um notkun síma, snjalltækja og samfélagsmiðla í skólum og frístundastarfi.

Virðulegur forseti. Hröð tækniþróun hefur haft töluverð áhrif á skólastarf en á sama tíma skapað margs konar áskoranir og ný tækifæri. Sambærileg þróun á sér víða stað í Evrópu og stjórnvöld hafa verið að bregðast við þeirri þróun, til að mynda með setningu laga eða reglna sem banna eða takmarka notkun farsíma í skólum eða þar sem gefnar eru út leiðbeiningar um farsímanotkun í skólum. Hér á Íslandi sýna kannanir að nánast öll íslensk börn á aldrinum 9–18 ára eiga síma og þá liggur fyrir að notkun síma og snjalltækja meðal barna og ungmenna hefur aukist.

Ýmsar ástæður eru fyrir því að börn hafa farsíma með sér í skólann. Sem dæmi nota sum börn síma sem hjálpartæki, önnur til að ferðast til og frá skóla eða til að eiga samskipti við foreldra eða forsjáraðila. Þá eru börn í auknum mæli að nota gervigreind til að afla sér upplýsinga eða þá til aðstoðar við nám. Þrátt fyrir gagnsemi þessara tækja við ýmsar aðstæður hefur notkun þeirra einnig leitt til áskorana innan og utan skóla, svo sem valdið aukinni truflun í kennslustofum og dregið úr félagslegum samskiptum nemenda á skólatíma.

Á Íslandi er hvorki samræmd stefna né miðlægar reglur um notkun barna á símum og snjalltækjum í skólum. Skólum hefur verið veitt svigrúm til að útfæra slíkar reglur og hafa flestir grunnskólar hér á landi sett sér reglur eða viðmið um notkun farsíma í skólunum. Slík leið getur þó leitt til mismunandi útfærslu á landsvísu.

Undanfarið hefur átt sér stað umræða í samfélaginu um hvort banna eða takmarka eigi notkun síma og snjalltækja í skóla- og frístundastarfi og um útfærslur á banni eða takmörkunum. Í þessu samhengi má nefna að í október síðastliðnum fór fram könnun á vegum Maskínu þar sem spurt var um snjallsíma í grunnskólum. Niðurstöðurnar gefa til kynna að meiri hluti svarenda sé andvígur notkun barna á snjallsímum í grunnskólum á Íslandi, 79%, en einnig gefa þær til kynna að flestir svarendur væru á því að settar yrðu einhvers konar reglur um notkun. Enn fremur gefa niðurstöðurnar til kynna að meiri hluti svarenda, 69%, telji notkun barna á snjallsímum í námi hafa neikvæð áhrif. Ljóst er að álitaefnin eru margs konar og sjónarmið ólík sem mikilvægt er að verði höfð til hliðsjónar við útfærslu þeirrar reglugerðar sem lögð er til með frumvarpinu.

Frumvarpinu sem ég mæli hér fyrir er ætlað að styrkja og bæta lagagrundvöll um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum með því að setja reglugerð. Með reglugerð er ætlunin að samræma lágmarksviðmið og undanþágur til að ná því markmiði að bæta náms- og félagsumhverfi og líðan nemenda í skólum á landsvísu. Í lögum um grunnskóla er að finna reglugerðarheimildir sem kveða á um heimild ráðherra til að mæla nánar fyrir um ábyrgð og skyldur aðila í skólasamfélaginu í reglugerð. Þessar heimildir eru hins vegar almennar og er talið fara betur á því að setja sértækari heimild í lög um grunnskóla líkt og lagt er til í frumvarpi þessu. Breytingin mun þannig skjóta skýrari lagastoð undir reglugerð sem snýr að notkun síma og snjalltækja í skólastarfi. Þá er áréttað að reglugerðin muni einnig gilda í frístundastarfi.

Virðulegur forseti. Með því að styrkja heimildir mennta- og barnamálaráðherra til að setja miðlægar reglur skapast jafnframt ákveðinn sveigjanleiki til að bregðast skjótt við þeim áskorunum sem hröð tækniþróun hefur í för með sér í stað þess að kveða á um slíka notkun í lögum. Verði frumvarpið að lögum liggur fyrir að við vinnslu reglugerðarinnar þarf að taka afstöðu til atriða sem snúa m.a. að því hvaða tæki er um að ræða, í eigu hverra, til hvaða aldurs slíkar reglur nái, hvaða undanþágur eigi að heimila og í hvaða formi og hvernig eigi að framkvæma reglurnar og hafa eftirlit með þeim. Ég legg mikla áherslu á að reglugerðin verði unnin í samráði við hagsmunaaðila, þar á meðal við börn og ungmenni, enda mikilvægt að þeirra sjónarmið endurspeglist í reglugerðinni sem boðuð er með frumvarpi þessu. Í þessu samhengi má nefna að umboðsmaður barna heldur barnaþing nú í nóvember og er fyrirhugað að eiga samráð við börn hvaðanæva af landinu um þetta málefni á þeim vettvangi. Áréttað er að reglugerðinni er ætlað að samræma og setja skýrari viðmið um notkun síma og snjalltækja, en henni er hvorki ætlað að banna né útiloka tækin í skóla- og frístundastarfi. Innan þess ramma sem reglugerðin veitir gefst ákveðið svigrúm til útfærslu sem styður við faglegt skóla- og frístundastarf. Ég er sannfærður um að slík viðmið verða til góðs fyrir börn, foreldra, kennara, skóla og samfélagið allt.

Virðulegur forseti. Ég hef hér farið yfir meginatriði frumvarpsins en vísa að öðru leyti til greinargerðar þeirrar er fylgir frumvarpinu. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umræðu og hv. allsherjar- og menntamálanefndar.