157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:16]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Hæstv. ráðherra fer fyrir, að ég vil meina, einum mikilvægasta málaflokknum okkar sem varðar framtíðina; börnin okkar og menntun. Nú er ég almennt ekkert hrifin af bönnum en ég verð að viðurkenna það, hafandi heyrt fréttir af símalausum skólum og séð hver árangurinn er, þá er ég mjög jákvæð fyrir því. Ég hef aftur á móti haft efasemdir um að það væri eitthvað sem við þyrftum að banna með lögum frá Alþingi, enda eru skólarnir á forræði sveitarfélaganna og ég veit að langflestir eða mjög margir skólar eru komnir með skýrar reglur í þessu. Þetta er annað frumvarpið sem hæstv. ráðherra mælir fyrir á þessu þingi, við erum komin fram í 11. nóvember. Mér virðast allir vera sammála um það að málaflokkurinn sem hæstv. ráðherra fer fyrir sé mikilvægur og það brenni á, en það eru komin tvö frumvörp frá hæstv. ráðherra; annars vegar varðandi framhaldsskóla, um viðurkenningu námsbrautarlýsinga, og hins vegar um að banna síma í skólum. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er þetta allt sem hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) hyggst gera á þessum vetri? Er þetta það sem brennur á? Er þetta (Forseti hringir.) það sem er allra mikilvægast fyrir börnin okkar og ungmennin í landinu?