157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:17]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er sammála henni í því, það skiptir gífurlega miklu máli að gefa, eins og við segjum, símafrí í skólum og það sem er annað í þessu er að börnin hafa líka beðið um að það séu samræmdar reglur á milli skóla. Það hefur skort á það og þau hafa bent á að í einum skóla gilda einar reglur og svo í næsta skóla við hliðina gilda aðrar reglur þannig að það er mun betra að hafa samræmdar reglur. En er þetta það eina? Nei. Það sem ég hef verið að leggja fram og hef stefnt að er að koma með vönduð lög hérna inn og virkilega sjá til þess að þau lög sem koma hérna séu vel unnin. Það eru fram undan fleiri mál eins og gjaldfrjáls námsgögn, barnaverndarlög og fleira sem eru virkilega stór og mikil lög sem borgar sig að vanda sig vel við áður en maður setur þau inn í þingið. Eins og hv. þingmaður veit þá er oft kvartað undan því að við komum með lögin of fljótt hingað inn og illa unnin. Ég stefni að því að koma með góð lög og vel unnin.