157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:22]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu sína í þessu máli. Í fyrra andsvari mínu langar mig að koma inn á það sem hann skautaði svona létt yfir, það sem hann talaði um og kemur fram í frumvarpinu, að flestir grunnskólar hér á landi hafa sett sér reglur og viðmið um notkun farsíma í skólum. Það er dálítið áhugavert að lesa þessa klausu áfram því að þar stendur, með leyfi forseta:

„Samkvæmt könnun umboðsmanns barna árið 2024 höfðu allir grunnskólar sem svöruðu sett sér reglur eða 126 talsins; 45% þeirra leyfa ekki farsíma, 52% leyfa farsíma með takmörkunum og 3% leyfa farsíma án takmarkana.“

Í rétt tæpum 60% tilvika höfðu börnin sjálf komið að þessum reglum, sem er vel. Því spyr ég: Til hvers er þetta? Það eru reglur í skólunum um þetta. Skólasamfélagið er augljóslega að taka á málinu, sem er vel. Til hvers er þetta plagg? Treystir hæstv. ráðherra ekki skólasamfélaginu til að sjá um þetta?