157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:26]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það má vel fagna þessu frumvarpi sem hér er fram komið um að fela ráðherra að búa til samræmd viðmið um það hvernig símabanni sé háttað í grunnskólum. Ég hefði áhuga á því að fjalla um ýmislegt hérna í andsvörum. Það eru einhverjar spurningar sem við þurfum að varpa betra ljósi á. Í ljósi þess að flestir skólar eru búnir að setja sér einhver viðmið um þetta, hvort sem það er algjört bann eða bann með einhverjum takmörkunum, liggur fyrir hvernig þessari endanlegu reglugerð ráðherrans verður háttað, þ.e. í hvaða mynd það verður? Veit hæstv. ráðherra u.þ.b. hvernig þetta bann verður? Verður þetta nærri því algjört bann eða verður gengið eitthvað skemur? Og verður það þá þannig út frá þessari reglugerð að þeir skólar sem eru búnir að taka einhverja stefnu og eru komnir í einhvern farveg með þetta, hafa svigrúm gagnvart þessari reglu ráðherrans? Eða verða allir steyptir í sama mót?