157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:27]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanninum fyrir andsvarið. Jú, þetta er einmitt það sem við ætlum að fara í. Það er samtal og samráð númer eitt, tvö og þrjú. Það gildir auðvitað í sjálfu sér um skólana, kennara, börnin og alla þá sem telja sig þetta varða. Ég vona líka að við getum náð samtali við foreldrana vegna þess að þetta er ekki bara vandamál skólans. Þegar börnin eru farin að nota símann að meðaltali í þrjá, fjóra klukkutíma á dag á samfélagsmiðlum og allt upp í níu tíma, ég hef séð það, þá segir það okkur að við verðum að gera eitthvað. Það er það sem við erum að gera. En númer eitt, tvö og þrjú er það að við ætlum í samtal og samráð. Það er langbesta leiðin. Það er líka langbesta leiðin og hefur alltaf skilað sér best að tala við börnin og fá þau með. Þau eru virkilega að biðja um að fá frí frá þessu tæki. Sérstaklega yngri börnin.