grunnskólar.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og velti þó enn fyrir mér — þetta lítur þannig út að núna sé hafið þetta ferli, það er lagt fram frumvarp og svo verður vinna í meðförum þingsins. Menn ætla greinilega að reyna að fikra sig að einhverri almennri reglu, sem ráðherra mun þó kveða á um sjálfur þótt hann fái til þess heimild hérna. Hún verður, bara þannig að ég skilji það alveg rétt, ófrávíkjanleg regla frá stjórnvöldum sem á að gilda í öllum grunnskólum. Eða munu þeir enn hafa sitt svigrúm til þess að gera þetta? Maður getur sannarlega verið sammála markmiðunum hérna en ég velti fyrir mér hvort einhverjir séu bara komnir með sitt fyrirkomulag og að það sé gott. Þarf þá að breyta því eða munu þeir hafa þetta svigrúm? Eins og hæstv. ráðherra vísar til eru mörg börn sem vilja þetta. Ég held að þótt við séum auðvitað með efasemdir um alla forræðishyggju sé forræðishyggja einmitt það sem við viðhöfum þegar við erum að nálgast börnin okkar, það er uppeldi í eðli sínu. Þetta er sannarlega góð hugsun. Ég velti bara fyrir mér: Hvað er nákvæmlega verið að gera með þessu frumvarpi?