grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, við erum að sjá til þess, númer eitt, tvö og þrjú, að skólinn sé griðastaður fyrir börn. Það á að vera þannig að börnin eiga að geta einbeitt sér að því í skólunum að læra. Truflun af símtækjum hefur verið staðfest. Þau eru að valda truflunum í skólastarfi. Meira að segja börnin sjálf eru að biðja um að það séu einhverjar reglur. Síðan segir það sig auðvitað sjálft að allsherjar- og menntamálanefnd mun auðvitað verða velta upp öllum þessum spurningum í meðförum þingsins. Síðan hefur nefndin ákveðið svigrúm til þess að koma með niðurstöður. En tilgangurinn hlýtur alltaf að vera sá að fá einhverjar samræmdar reglur þannig að það sé ekki mismunandi á milli skóla. Ég tel að það sé bara númer eitt, tvö og þrjú að fá þetta samtal og samráð. En við vitum líka að það eru ákveðnir hópar sem verða að treysta á símann eftir skóla; komast í strætó og það eru ýmsir hlutir, sum börn sem eru með ákveðin veikindi þurfa að vera með síma hjá sér. Þannig að það verða alltaf einhverjar undantekningar. En í heildina erum við að reyna að búa til samræmt símafrí.