grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég verð að segja alveg eins og er: Auðvitað þurfum við líka að hafa ákveðnar samræmdar reglur í sambandi við tölvu- eða spjaldtölvunotkun í skólum. Við vitum t.d. að það hefur verið talað um að nota símana sem kennslutæki í skólum. Það er ekki gott. Við vitum að það eru mismunandi gæði á þessum símum og sumir eiga ekki síma. Ég tel aftur á móti að skólasamfélagið verði að huga að því að hafa einhverjar samræmdar reglur um hvernig á að kenna á þessu tæki. Þannig á líka að sjá til þess, þegar verið er að kenna börnum í heilum bekk, að þau sitji öll við sama borð, að það séu ekki mismunandi góð eða slæm tæki sem þau noti til að læra. Það er líka ábyrgðaratriði að kenna þeim ábyrga notkun á þessu tæki vegna þess að hætturnar eru til staðar. Við vitum það að þær eru farnar að stóraukast með gervigreind og ýmsu öðru sem börnin geta komist inn á. Þetta er vandmeðfarið. En númer eitt, tvö og þrjú er samtal og samráð.