157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:34]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og tek undir með honum að það er afar mikilvægt að huga að samvinnu og samráði og ég fagna því sem ráðherrann segir hér. Við höfum heyrt of mikið af því innan menntageirans að það sé skortur á þessu samtali og samráði og það sé verið að leggja fram mál hér á Alþingi og ýmsar reglugerðir þar sem ekki er haft samband við fagaðilana. Við vonum að það horfi til betri vegar. Það er einmitt mikið talað um að efla þurfi upplýsinga- og miðlalæsi og að það sé verið að skilgreina hvernig tækin eru því þetta er ekkert endilega tækið sjálft heldur hvað er í tækinu sem verið er að nota. Við viljum ekki að símabann sé endilega tæknibann og að við hættum að kenna stafrænt læsi, sem er afar mikilvægt.

Fjölmiðlanefnd hefur það hlutverk í dag, samkvæmt lögum, að efla miðlalæsi en hefur ekki verið úthlutað viðunandi fjármagni til þess að geta gert það. Einnig er verið að tala um SAFT, sem er í dag Netvísi, og það hefur líka mikilvægu hlutverki að gegna í gerð fræðsluefnis fyrir nemendur, kennara og foreldra. Nú er verið að óska mikið eftir því að fá þessa aðila inn á borð skólanna varðandi fræðslu. Það eru fögur orð að tala um að afla upplýsinga- og miðlalæsi og tæknimennt þegar stofnanir ríkisins hafa lagalega skyldu (Forseti hringir.) en fá ekki fjármuni til þess að geta sinnt starfi sínu.

Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Reiknar hann með að þessir aðilar fái í næstu fjárlögum (Forseti hringir.) aukinn fjárstuðning til að geta sinnt þessu mikilvæga hlutverki sínu?