157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:37]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir sína ræðu og framsögu og svör við andsvörum hv. þingmanna. Hér er komið mál sem undirritaður hefur nú talað fyrir í alllangan tíma, alla vega einhvers konar vísir að því máli. Í raun er aðeins erfitt að ræða hér um eitthvað sem birtist síðan í reglugerð og maður veit ekki nákvæmlega hvernig lítur út, eins og hv. þm. Snorri Másson var að reyna að komast að. En þetta eru vonandi skref til góðs til að frelsa börn og ungmenni frá þeim hlekkjum sem snjallsímar og oft á tíðum skjáir hlekkja börnin í.

Ég hef ákveðnar áhyggjur samt sem áður af þessu frumvarpi vegna þess að það virðist hafa verið unnið í töluverðum flýti og einhvern veginn púslað saman héðan og þaðan. Til marks um það má sjá að hér er talað jöfnum höndum um snjallsíma, síma og farsíma í frumvarpinu. Þessum orðum er bara dreift hingað og þangað og það er risastór munur, held ég, í hugum fólks á farsíma, snjallsíma og síma. Gamli, góði, grái Ericsson-síminn kemur í hugann þegar maður hugsar um síma. Farsímar eru kannski Motorola- og Nokia-símar sem voru með Snake í og snjallsímar eru símar þar sem maður kemst á internetið. Þetta er ákveðin vísbending um vinnubrögð sem eru ekki góð og ef svona vísbendingar eru í frumvarpinu er ákveðin hætta á að það sé meira sem maður tekur ekki kannski eftir í fljótu bragði. En þetta er eitthvað sem auðvelt er að laga og ég veit að ráðuneytið kemur til með að gera það.

Hér minntist hæstv. ráðherra á menntastefnu sem byggist á fimm eftirfarandi stoðum. Sú fyrsta er jöfn tækifæri og ég velti því fyrir mér hvernig menntakerfið sinnir þessari stoð eins og staðan er í dag. Við áttum samtal við ungmenni í morgun í allsherjar- og menntamálanefnd og ég ræddi við hóp þar eftir fundinn, ekki þá sem komu frá Verzlunarskólanum heldur hina, og það var alveg ljóst að helsta umkvörtunarefni þeirra var að jafnræðis við lok grunnskóla er alls ekki gætt. Þar eru einkunnir hingað og þangað og ekkert jafnræði, ekkert samræmi. Það er vonandi mál sem hæstv. ráðherra fer fljótlega í og hæstv. ráðherra tengdi þessi símamál við hæfni fyrir framtíðina. Ég velti því líka fyrir mér, hver er hæfni fyrir framtíðina? Þetta eru orð á blaði þar sem er frumvarp til laga og verður mögulega að lögum, varðandi lagasetninguna og þetta held ég að menn þurfi að hafa algerlega á hreinu, hver er hæfni til framtíðar, vegna þess að að mínu mati — ég þykist nú vita hvaða orð eigi að koma þarna inn; gagnrýnin hugsun, samvinna, sköpun og eitthvað annað slíkt en allir þessir þættir byggjast á orðaforða og hugtakaskilningi. Þú gagnrýnir enga hluti ef þú hefur ekki hugmynd um þá og hefur ekki orðaforðann yfir þá. Þú skapar ekkert nema þú hafir reynslu sjálfur eða þekkir hugtökin í kringum það sem þú ætlar að skapa. Fæstir grípa bara út í loftið og búa til eitthvað nýtt. Í stað þess bara að skrifa einhvern texta inn í frumvörp þá vona ég að menn viti nákvæmlega hvað um ræðir í þessu.

Svo er það ein stoðin enn, gæði menntakerfisins. Hvernig metum við gæði alls menntakerfisins? Menntakerfið byggist á aðalnámskrá og þar er að finna hæfniviðmið. Það er ekkert í núverandi kerfi sem mælir þetta. Matsferill kemur svo sannarlega ekki til með að mæla þetta vegna þess að hann mælir einungis valin hæfniviðmið. Mér finnst alla vega margar stoðir þarna standa veikum fótum þannig að þetta er kannski fyrir stjórnvöld að athuga.

Svo að ég fari nú í þetta áfram þá er hér eitt sem kom mér ekki á óvart í frumvarpinu. Það er starfshópur sem fjallaði um þetta mál og ég ætla aðeins að vitna í frumvarpið, með leyfi forseta:

„Þrátt fyrir að starfshópurinn hafi ekki náð saman um að skila sameiginlegri niðurstöðu í skýrslu kom ýmislegt fram í þeirri vinnu sem m.a. varpaði ljósi á valkosti og ólík sjónarmið um notkun farsíma í skólastarfi, svo sem mikilvægi fræðslu og samráðs en önnur álitaefni voru talin þarfnast frekari umfjöllunar og lutu m.a. að tækjakosti og framþróun í tækni.“

Hér erum við búin að safna saman hagsmunahópi og samstarfsviljinn er það lítill að menn geta ekki komið sér niður á eina skýrslu um snjallsíma og snjalltæki í skólum. Það er sérstakt og lýsir kannski þeirri togstreitu sem er í skólastarfi núna að hér eru ákveðin öfl sem hafa fengið að valsa um óáreitt í 10–15 ár, þau vilja halda í sitt og svo eru öfl sem vilja grípa börnin og halda utan um þau og verja þau fyrir þeim ókostum sem snjallsímar og snjalltæki geta valdið. Vissulega er ekkert allt vont við það en margt þó. Það vekur ákveðinn varhuga hjá manni að þessi skýrsla sé ekki tiltæk. Ég er búinn að leita að henni úti um allt á netinu. Það er ekkert til um vinnu þessa hóps. Kannski getur ráðherra frætt mig um það. Engri sameiginlegri skýrslu var skilað en það væri kannski gott að fá einhvers konar skýrslu og sjá hvar skarst í odda hjá þessum hópum, voru einhverjir með símabanni og aðrir ekki, og fá þá ástæður þess að það var ekki hægt að skila sameiginlegri skýrslu. Ég hef bara aldrei heyrt áður í menntakerfinu að það hafi ekki verið hægt að skila sameiginlegri skýrslu.

Ég held að það sé óumdeilt að snjallsímar, hvort sem er í skóla eða heima, draga ekki endilega alltaf það besta fram í fari okkar allra, hvort sem það eru börn eða ungmenni eða við fullorðna fólkið. Við fullorðna fólkið erum flest alla vega með þroskaðan framheila sem börn og unglingar eru ekki með og það hefur verið sýnt fram á það að mikil notkun á þessum tækjum getur hreinlega breytt taugatengingum í heilanum þannig að þetta er ákveðið alvarlegt úrlausnarefni. Þegar börn eru spurð í Danmörku þá viðurkennir 31%, og börn vilja flest hanga á þessum skjám sínum, að skjáir sem þau eru með, þá eru það tölvur og allt annað, trufli þau. Þetta er vonandi eitthvað sem verður hugað að þegar reglugerð verður sett. Það skiptir miklu máli að pendúllinn sem var — skjáir voru settir inn í alla skóla á ótrúlega marga nemendur að þeim forspurðum og menn áttu bara að fara út í djúpu laugina og synda með þessu án þess — þetta er dálítið dæmigert fyrir skólasamfélögin, það er eitthvað sett inn og menn hafa í rauninni ekki hugmynd um hvaða áhrif þetta hefur. Menn halda bara að þetta hafi góð áhrif. Hér erum við að tala um ríkustu fyrirtæki í heimi sem markaðssetja þessa hluti. Það er ekki tilviljun að þetta fari nánast gagnrýnislaust inn í skólastarfið. Sem betur fer er mikil vakning víða um samfélagið hvað þetta varðar.

Það má alveg nefna það hér að snjalltæki og símar geta gagnast t.d. fötluðum og börnum af erlendu bergi brotnum varðandi að þýða hluti mjög vel og það er ýmislegt auðvitað í snjalltækjum sem við fullorðna fólkið þekkjum. En það er ákveðin hugsun í því að í skyldunámi þar sem börn eru skylduð samkvæmt lögum til að vera í skóla — ef foreldrar eru á öndverðum meiði við það eða vilja ekki að börnin sín séu með skjái, við skjá, þá eru þau sett í þær aðstæður að í skyldunámi eru þau þvinguð til að vera við skjái. Ég held að við ættum að hugsa það svolítið til enda. Sjálfur er ég í flokki sem er ekki mikið fyrir forræðishyggju og sjálfur er ég það ekki en þegar kemur að einhverju sem er töluvert mikið ávanabindandi og að mínu mati hættulegt fyrir bæði námsárangur, geðheilsu og félagsfærni þá eigum við að sýna ákveðna ábyrgð og stíga þessi skref.

Það er nokkuð merkilegt sem hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir og Tómas Þór Þórðarson nefna hér og vísa hér í greinargerðina, hér virðast allir skólar á Íslandi vera búnir að setja sér reglur fyrir utan 3%. Þá vaknar eðlilega sú spurning: Hvers vegna er verið að setja fram þetta frumvarp? Ég skil þá spurningu bara mjög vel. 97% skóla eru með reglur. Þarf þá að vera með heilt frumvarp og lög um þessi 3%? Ég gæti svarað því hér en ég ætla kannski ekki að gera það nema þá að menn geti lesið á milli línanna hvað mér finnst um það. En þetta er alla vega spurning, hversu virkt er þetta bann í skólunum og er þetta vantraust ráðherra á þessi 97% skólanna að vilja setja þessa reglugerð sem síðar kemur í kjölfar þessa frumvarps?

Ég sé að tíminn líður ansi hratt hér en það hefur komið fram og það er mikil vakning í löndunum í kringum okkur um það og löngu farið af stað víða varðandi snjallsímana sem eru þannig truflandi — þótt þeir séu stilltir á hljóð og ofan í tösku þá er vissan um að það bíði skilaboð eftir í símanum mjög truflandi, hvað þá ef þú ert með símann á hljóði inni og finnur titringinn, færð kannski 20–40 þannig tilkynningar í hverri kennslustund. Það sjá allir að slíkt er með öllu ótækt.

En það eru ekki bara símarnir heldur eru núna flest lönd búin að sjá að af því að þau vilja börnunum hið besta þá þarf að gera eitthvað í þessu. En það eru líka lönd sem hafa áttað sig á því að skjáir trufla, og auðvitað skiptir máli hvað er á skjánum, en það að læra með blað og blýant, skrifa niður glósur, taka aðalatriði niður, er miklu happadrýgra en að slá það inn á lyklaborði. Þú festir það betur í minni og að muna hluti skiptir máli. Það er ekki að þú getir bara gúglað allt, þú þarft að hafa ákveðna grunnþekkingu til að geta síðan almennt gúglað.

Þegar þáverandi hæstv. menntamálaráðherra, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kom og kynnti þetta fyrst fyrir okkur óformlega og síðan þegar ráðherra kom hér óformlega inn í nefndina þá minnti ég sérstaklega á að það þarf að koma verulega stór og mikill upplýsingapakki á mannamáli þar sem er vísað í rannsóknir þannig að allt samfélagið skilji að það ber að fara varlega með þessi tæki, snjalltækin og snjallsímana. Börn og foreldrar þurfa að skilja það að ávinningurinn er þeirra, það sé ekki verið að þröngva þessu upp á fólk sem vill það ekki, heldur er það þeirra ávinningur að við sem samfélag tökum höndum saman um þetta.

Svo þarf líka að koma upp aðstöðu fyrir skólana af því að oft er alls konar hlutum hent inn í skólana og þeir eiga síðan að sjá um það hvernig eigi að framkvæma hlutina og koma þeim í praktík, skiptir máli að skólarnir fái þartilgerða skápa, maður getur t.d. skoðað hvernig Akureyrarbær gerir þetta. En það sem er aðeins ekki nógu gott hérna í frumvarpinu er að sagt er að þetta kosti ekki neitt. Það þarf að huga að því að skólarnir eru frekar takmörkuð auðlind fjármuna og það að sinna þessu mun örugglega kosta eitthvað. Ég myndi giska á að það væri svona hálft stöðugildi og ég veit að Akureyrarbær er með slíkt fyrir hvern skóla.

Að lokum þyrftum við að vera leiðandi afl, ekki einhvers konar fylgisveinar þeirra landa sem eru núna að athuga hjá sér snjalltækin, að hugsa það alvarlega að hér eru snjalltæki inni í kennslustundum marga klukkutíma á dag. Þessu eru mörg ríki, svo sem Danir, Þjóðverjar, Belgar og Finnar, að hverfa frá. Það þarf að setja lög um þetta líka. Við þyrftum að skoða þetta og það þyrfti að komast inn í reglugerðina og hugsa það mál algjörlega til enda.