157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:52]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen. Hann er, eins og er vel þekkt, talsmaður Sjálfstæðisflokksins í málefnum barna. Þetta er ekki flókið mál. Þetta er einfalt mál og felst í því hvort það megi setja reglur, samræmdar reglur, af hálfu ráðherra um notkun síma. Mér heyrðist hv. þingmaður vera sammála því, hann styddi þetta frumvarp. Það var ekki annað að heyra á hv. þingmanni en hann styddi það. En það var annað sem vakti athygli mína í ræðunni. Það var lýsing hans á einhverjum átökum í skólasamfélaginu sem kom mér á óvart og ég held að það væri þarft að fá nánari umræðu um það hér á þinginu af því að hann þekkir vel til skólasamfélagsins. Það væri annars vegar hópur skólamanna sem væri annt um velferð barna og svo væri einhver annar hópur. Þetta væri áhugavert fyrir umræðuna þannig að hún þroskist. Þetta er ekki stórt mál en það getur skipt miklu máli að fá einmitt heimild til þess að setja samræmdar reglur um þessa þætti sem eru að stela tíma frá börnunum. En mér þætti vænt um að fá örlitla skilgreiningu eða umræðu um það hvaða hópar eru að takast á í íslenskum skólum.