157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[14:56]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé kannski óþarfi að vera að flækja einmitt þessa umræðu um snjallsímana við þessa spjaldtölvuvæðingu, ef ég skil hv. þingmann rétt. Ég er reyndar á því að þessi spjaldtölvuvæðing hafi gengið heldur of langt. Mér finnst skipta máli að krakkar kunni að draga til stafs og síðan auðvitað að koma frá sér texta. Það er ljóst að þegar fólk fer í framhaldsskóla eða út á vinnumarkaðinn þá er það sjaldnast eitt; það þarf að geta komið frá sér skilaboðum, geta komið frá sér texta, geta líka rætt hlutina og komið munnlegum boðum áfram til vinnufélaga eða skólafélaga. Þannig að ég er efins um þessa spjaldtölvuvæðingu og er gamaldags hvað það varðar. Ef það er afstaða hv. þingmanns, ef hann er sama sinnis, þá held ég að við séum á sömu blaðsíðu hvað það varðar.