grunnskólar.
Virðulegi forseti. Mig langar að drepa á nokkrum atriðum varðandi þetta mál. Ég vil byrja á að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrir að mæla fyrir þessu frumvarpi og fagna því að það sé komið fram. Ég tel að það sé vel tímasett vegna þess að það hefur aldrei verið jafn mikil almenn sátt um það að stíga þetta skref. Það er rétt, það er búið að setja reglur í skólum. En til þess að þessar reglur standi styrkari stoðum er gott að hafa lög eða einhvers konar opinberar reglur á bak við sig, sérstaklega þar sem þessar breytingar gætu mætt mótstöðu sem þær gera alveg ábyggilega einhvers staðar. Þá er mikilvægt fyrir skólann að hafa opinberan stuðning.
Það að vera ekki með síma í kennslustofum er gríðarlega mikilvægur þáttur til að búa til uppbyggilegt og árangursríkt námsumhverfi. Ekkert nám á sér stað ef námsumhverfi er ekki í lagi. Það er alveg sama hvað er lagt á borð fyrir nemendur, fyrsta skrefið til að nám eigi sér stað er að búa til námsumhverfi. Það er ekki heilbrigt eða gott og uppbyggilegt námsumhverfi þegar börn verða fyrir ónæði af völdum síma. Skólinn, eins og hæstv. mennta- og barnamálaráðherra nefndi svo réttilega, á að vera griðastaður og friður fyrir áreiti og ágangi utan frá. Það er best gert með því að símarnir séu ekki til staðar og bara svo það sé á hreinu eru símar ekki kennslutæki. Það er mjög lítið nám sem á sér stað í gegnum síma. Það hefur verið nefnt að nota þýðingartól eða þýðingarsmáforrit. Þau eru öll komin í tölvur vegna þess að flestir skólar eru orðnir vel tækjum búnir þannig að það er ekki þörf á þessu lengur. Það eina sem gæti svo sem verið er að þau noti símann til að ferðast, eru með strætóforrit. Þá er hægt að geyma símana á þartilgerðum stað þar sem þeir valda ekki truflun. Mögulega eru einhverjar undanþágur frá þessu og eru náttúrlega mjög sjaldgæfar. Það er ef það er eitthvað heilsufarslegt, svo sem eins og sykursýki. Sumir eru með app sem lætur vita ef blóðsykurinn fer upp en þetta er í svo fáum tilvikum að það er bara fyrir skólann að setja slíkar reglur.
Það er búið að ræða svo mikið hér í dag að þetta sé kannski ekki mál sem þurfi að ræða vegna þess að það séu önnur og stærri aðsteðjandi mál sem þurfi að tala um, svo sem eins og íslenskukennslu, stærðfræðikennslu, kenna börnum að lesa sér til gagns og allt þetta sem við höfum heyrt áður. Þá mæli ég með því að hv. þingmenn gefi sér nokkrar mínútur og horfi á úrslitakvöld Skrekks frá því í gærkvöldi. Það er skemmst frá því að segja að framlag allra skólanna var þeim sjálfum sem tóku þátt, skólunum þeirra sem þau kepptu fyrir og ungmennum öllum til mikils sóma. Öll atriðin báru það með sér að ungmennin okkar láta sig samfélagið varða og þau voru gagnrýnin á margt í samfélaginu, svo sem orðræðu, neysluhyggju, hópþrýsting og fleira. Það var í rauninni ofboðslega ánægjulegt að fá tækifæri til að vera viðstödd og sjá þetta og kannski sérstaklega ánægjulegt vegna þess að það var Fellaskóli sem hlaut verðskuldaðan sigur, ekki bara fyrir atriði sitt heldur fengu þau líka Skrekkstunguna sem er veitt þeim sem nota íslenskuna á skapandi hátt.
Mig langar að enda þessa stuttu tölu mína á því að lesa fyrir ykkur umsögn. Fellaskóli er eins og við vitum með hvað hæst hlutfall nemenda af erlendum uppruna og fékk Skrekkstunguna í gær. Þetta er vísun í umsögn dómnefndar, með leyfi forseta:
„Atriðið sem fær Skrekkstunguna árið 2025 nýtir íslensku á skapandi hátt í söng, tali og einræðu. Atriðið er á vönduðu og fallegu máli, ljóðrænt og seiðandi en líka skýrt og aðgengilegt. Málsnið hvers hluta er viðeigandi fyrir efni hans, tungumálið er óþvingað og slípað og hvert orð þjónar atriðinu. Flytjendur nota tungumálið í eigin þágu og er titillinn þar engin undantekning.“
Stórkostleg umsögn um atriði Fellaskóla sem var algjörlega frábært og ég hvet ykkur til að horfa á. Mig langar líka að hrósa þeim hópi ungmenna sem voru þar að hvetja skólana sína áfram og það er mikill metnaður lagður í þessa vinnu í grunnskólum í Reykjavík. Atriðin í gær báru með sér að ungmennum okkar er fyllilega treystandi fyrir íslenskunni. Það er bara mitt niðurlag.
En aftur að símunum, ég fagna þessu frumvarpi mennta- og barnamálaráðherra og ég sé fram á betra og heillavænlegra námsumhverfi fyrir vikið.