157. löggjafarþing — 31. fundur, 11. nóv. 2025.
grunnskólar.
232. mál
Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir svarið. Ég vil að það komi fram að hv. þm. Tómas Þór Þórðarson spurði hvort kennurum væri treystandi, spurði hv. þingmann. Þetta var orðavilla hjá mér í byrjun, ég vil að það sé leiðrétt. En þá vil ég koma með seinni spurninguna til hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur, hvort hún geti tekið undir það með mér að þetta bann við símum muni ýta frekar undir að móðurmálið okkar sé notað í skólum og í skólasamfélaginu.