grunnskólar.
Virðulegi forseti. Mig langaði að byrja á smá játningu í þessu máli. Símabann í grunnskólum er líklegast búið að vera fastur hluti af minni umræðutilveru síðastliðin tíu ár. Þegar ég byrjaði að taka þátt í þeim samtölum í sveitarstjórn hjá Seltjarnarnesbæ var ég mjög harður gegn öllum símabönnum. Ég horfði á þetta tæki í rauninni sem hluta af lífi okkar, verkfæri sem börnin okkar þyrftu að læra á í grunnskólanum og að skólinn væri einmitt frábær staður til að læra að nálgast símana sem vinnutæki, nálgast símana sem tæki til að sækja sér þekkingu, þýða texta, nota kort og fleira, sá í rauninni bara tækifærin í tækjunum og var þá í rauninni svolítið harður andstæðingur símabanns. Á þeim tíma, fyrir tíu árum síðan, þá var alla vega í mínu sveitarfélagi meiri hlutinn, foreldrar voru á þessari línu líka, að sjá tækifærin í þessu, börnin voru algjörlega á móti öllum símabönnum og það var eiginlega svona minnihlutahópur í bæjarstjórn og ákveðinn hópur foreldra sem var að kalla eftir þessu og þeim var kannski bara mætt með smá svona, ég ætla næstum því að segja hroka, eins og þau væru bara að misskilja.
En svo er svo áhugavert hvernig málin þróast þegar við erum búin að kynnast tækjunum betur. Ég vil meina sjálfur að maður hafi þroskast svolítið. Fyrir tíu árum átti ég tveggja ára gamalt barn og nú á ég tólf ára gamalt barn og maður hefur bara fylgst með þróuninni, bæði á tækjunum og áhrifunum á börn og ungmenni. Ég hef líka starfað með börnum og ungmennum síðan 2008 og það hefur verið mjög sláandi að fylgjast með þróuninni á samskiptamynstri, þróun á líðan, þróun á þörfinni til að fara út og hitta annað fólk. Þetta hefur gjörbreyst á örfáum árum vegna þess að börnin eru einhvern veginn alltaf í tengingu en samt í engri tengingu. Þau eru alltaf að fá afþreyingu en samt líður engum vel. Þau eru alltaf að renna í gegnum símann sinn, fá einhvers konar skilaboð í líkamann eins og hlutirnir séu í lagi, eins og þeim leiðist ekki en þau eru ekki að læra neitt, þau eru bara í einhverjum ákveðnum forarpytt og við erum þarna líka. Ég held að við tengjum flest við þetta sjálf. Við höfum upplifað þetta í gegnum okkar tæki. Þetta hefur alla vega orðið til þess að mín afstaða hefur algjörlega breyst og fyrir mér eru þetta þessi áhrif sem ég er að lýsa en líka hvað gögn eru að sýna okkur. Auðvitað er ekkert búið að sýna fram á að það sé akkúrat tækjunum að kenna en það er þá alla vega mjög áhugaverð tilviljun að á sama tíma og snjallsímarnir og samfélagsmiðlarnir ryðja sér til rúms hafi einfaldlega athyglisending ungmenna farið niður á við. Kvíðahugsanir unglingsstelpna hafa farið mjög upp á við og eru komnar út í sögulega háar sjálfsvígshugsanir í kjölfarið á uppsöfnuðum kvíða og þessum samfélagsmiðlum og þessu stanslausa áreiti. Það er gjörbreyttur veruleiki að fara úr því að vera að bregðast við samskiptavandamálum barna og ungmenna sem sneru að því að einn unglingur potaði eða sagði eitthvað ljótt við annan ungling í það að heill bekkur sé að senda einhverjum skilaboð klukkan hálftólf um kvöld, eitthvað sem heldur nemandanum vakandi alla nóttina.
Því er eðlilegt að við endurskoðum okkar afstöðu og líka okkar laga- og reglugerðaumhverfi og því fagna ég mjög þessu frumvarpi. Í þessu frumvarpi kemur ekki beint fram nákvæmlega útfærslan en ég treysti því eftir ræðu menntamálaráðherra að hann verði í virku samráði við þingið, við skólasamfélagið, við nemendur og setji fram reglugerð sem er börnunum fyrir bestu. Þetta skiptir líka máli því að umræðan hefur aðeins verið hér varðandi að nú þegar hafa grunnskólar sett sér ýmiss konar reglur en við höfum líka heyrt það í samræðum við skólastjórnendur að þeim finnst að þau skorti tækin til að geta gripið inn í, þeim finnst þau svolítið sitja eftir með svartapétur að hafa ekki skýrar heimildir til að setja reglur varðandi símanotkun og sérstaklega afleiðingar ef þær reglur eru brotnar. Skólastjórnendur og starfsfólk kalla mjög eftir því að stjórnvöld setji einhvers konar reglur sem eru samræmanlegar milli skóla en veita líka starfsfólki skólanna heimildir, tæki og tól til þess að geta sett sínar eigin reglur, til þess að geta gripið inn í og til þess að geta stuðlað að öruggu námsumhverfi fyrir börnin okkar.
Það er líka mjög áhugavert að ræða afstöðu foreldra og fagfólks, hvernig hún hefur þróast í gegnum tíðina. Það er bara staðreynd, við erum að ræða um grunnskólana hér, að í grunnskólunum getum við ekki reiknað með því að allir grunnskólanemendur hafi aðgang að snjalltækjum þannig að ef það á að nota tæknina, ef það á að vinna með skjálæsi, tæknilæsi o.s.frv., þá þurfa skólarnir að sjálfsögðu að vera með bekkjasett af spjaldtölvum eða fartölvum eða öðru sem þeir bjóða nemendum upp á til þess að læra þessi tækifæri sem ég talaði um kannski í byrjun ræðunnar, læra að nýta kortin, nota forritin á gagnlegan hátt en ekki að þetta sé stanslaus hluti af skóladeginum og stanslaust áreiti í vasa nemenda.
Það hefur líka verið áhugavert að hlusta á viðhorfsbreytingu nemenda sjálfra. Þeir eru raunverulega farnir að kalla eftir þessu. Við vorum bara síðast á fundi áðan með góðum hópi ungs fólks og þar kom líka góður punktur sem maður hefur kannski ekki leitt hugann mikið að þótt hann komi fram í greinargerð frumvarpsins. Sumir vilja setja þetta í frelsisbúninginn, eins og er bara eðlilegt í pólitík, frelsi einstaklingsins til að vera með sinn síma og setja sín mörk, en þar var ungt fólk sem sagði að símar nemenda trufli líka aðra nemendur. Ef samnemandi minn er alltaf í símanum þegar ég á að vera að einbeita mér að stærðfræði, þungri stærðfræðikennslu sem ég er að reyna ná stjórn á, hefur það líka áhrif á mitt námsumhverfi. Við þurfum að tryggja öruggt námsumhverfi þar sem nemendur ná, með þessa breyttu athyglisgáfu sem virðist vera þróunin með tímanum, að einbeita sér að náminu og ná árangri.
Það sem stendur eftir í þessu að mínu leyti er að við vitum alveg hvað er börnunum fyrir bestu og börnin vita sjálf hvað er þeim fyrir bestu og ég held að við séum öll sammála um, alla vega allar ræður sem ég hef hlustað á, að það er börnunum fyrir bestu að við setjum skýrar reglur um síma og snjalltæki í skólum.