157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:29]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að stinga mér aðeins niður í þetta mál. Ég held að allir hér inni, og örugglega flestir í samfélaginu, séu sammála því að símanotkun í kennslustundum í grunnskólum sé vægast sagt truflandi. Við vitum það, eins og hér hefur komið fram, að langflestir skólar í landinu hafa sett sér reglur þar um og flestir eru með svokallað símafrí þar sem börnin geta komið með símana í skólann, læst þá inni í hólfum eða geymt þá á ákveðnum stað þar til skólatíma lýkur því eins og við vitum eru misjafnar aðstæður hjá börnum, sum þeirra nota símann til að komast í strætó eða annað eftir skóla, þurfa að ná sambandi við forráðamenn og ýmislegt. Ég veit ekki til þess að nokkurs staðar hafi verið bannað að símar séu í skólum, sem sagt að þú komir með síma í skólann, það má vel vera, en það er aukaatriði.

Það vill nú þannig til að árið 2018 var stór skóli í Hafnarfirði, Öldutúnsskóli, einn sá fyrsti í landinu, a.m.k. af þeim stóru, sem fór í þessa vegferð, fór í samstarf við sitt skólasamfélag, kennara, foreldra og nemendur innan skólans með það að markmiði að koma á fyrst símabanni og síðan símafríi. Það tók gildi árið 2019 og þetta var, eins og ég segi, langfyrsti stóri skólinn sem gerði þetta og var tilefni fréttaflutnings og eftir þessu var tekið. Þetta var sannarlega góð ákvörðun. Eftirleikinn þekkjum við, flestir skólar hafa tekið upp eitthvert svipað fyrirkomulag. Í Öldutúnsskóla hafa verið gerðar ýmsar skoðanir á því hvernig þetta hefur tekist til og skoðuð viðhorf allra sem að skólasamfélaginu koma og það eru allir á eitt sáttir um að þetta hafi verið hið besta mál eins og við mátti búast. Nemendur spjalla meira saman í frímínútum, njóta samveru með hvert öðru, akkúrat eins og tilgangurinn átti m.a. að vera. Þetta er svona eitt af þessum málum sem maður veit að er stofnað til og farið af stað með af góðum hug.

Það er dálítið gaman að varpa því fram til hæstv. ráðherra af því að hann er nú enn í salnum, sem er mjög ánægjulegt og þakkarvert, út af hverju sveitarfélögum eða skólum er ekki treystandi til að setja sjálfir sínar reglur í samráði við skólasamfélög á hverjum stað. Það eru gríðarlega mismunandi þarfir, það eru gríðarlega mismunandi samfélög, heilu sveitarfélögin eða hver skóli hefur sína sérstöðu. Af hverju leyfum við ekki þessari þróun bara að vera eins og hún er? Það hefur komið hérna fram að skólastjórnendur eða skólafólk hafi óskað eftir því að fá einhvern stuðning við sitt fyrirkomulag. Það mætti e.t.v. búa til einhverja reglugerð eða reglur í ráðuneytinu sem hægt væri að nýta til að leiðbeina þeim sem þess óska. Mér finnst algerlega ástæðulaust til þess að búa til einhverjar samræmdar ríkisreglur. Forræðishyggjan enn einu sinni, hæstv. ráðherra. Treystum skólasamfélaginu á hverjum stað, treystum sveitarfélögunum, treystum skólunum til þess að gera þetta. Það hefur einmitt komið fram í einni af umsögnum í samráðsgátt, frá Skólastjórafélagi Íslands m.a. og líka frá ungmennum, að þess er saknað að þetta samtal hafi ekki verið tekið áður en þetta mál var sett fram. Þetta er enn eitt mál ríkisstjórnarinnar sem er þannig vaxið að það er sett fram og svo á að tala við fólk og aðila og þá sem að málunum koma. Það er alltaf viðkvæmt að ráðherra geti í rauninni, hver sem það er í það skiptið, í raun hlutast til um innra starf í grunnskóla. Það er viðkvæmt. Það er bara þannig. Og með svona reglugerð er verið að auka vald ráðherra til þess að setja reglur sem beinast beint að þessu innra starfi í stað þess að treysta viðkomandi skólasamfélögum.

Þetta er að mínu mati enn eitt forræðishyggjumálið. Mér finnst þessi mál komin á dálítið góðan stað. Það er hægt að veita stuðning þeim sem treysta sér ekki til að setja reglur, en ekki taka þetta vald af skólunum, ekki stíga svona inn í innra starfið, að það eigi það sama að ganga yfir alla og að það sé ein rétt ríkisleið. Ég óttast það og þess vegna finnst mér þetta mál í rauninni óþarfi. Það er bara óþarfi að setja þetta. Við ættum frekar að beina kröftum okkar að því, bara sem samfélag, að fræða og ræða þessi mál, hvernig við notum símana almennt og leiðbeina. Boð og bönn eða eitthvert samræmt regluverk er ekki málið í mínum huga. Það eru komnar reglur í skólum og sveitarfélögum um þessa notkun þannig að málið er að mestu leyti í góðum farvegi. Þótt einhverjir kunni að vilja stuðning þá er það annað heldur en að setja samræmdar reglur sem allir verða að fara eftir, hvort sem það hentar eða ekki á viðkomandi stað. Það er viðkvæmt að stíga inn í innra starfið og beita í rauninni valdi.

Þetta er það sem mig langaði helst að koma að. Það hefur verið hérna smá umræða um stafræna menntun og notkun slíkra tækja. Ég held að ég sleppi því að fara inn í hana. Það er annað mál. En það er bent á það í einni umsögninni, frá Samtökum iðnaðarins held ég, og hvatt til þess að fara ekki síður í þá vinnu að búa til heildstæða stefnu um stafræna menntun og þá með jafnræði og framtíðarhæfni allra barna í huga. En þetta er í ágætisfarvegi.

Mig langar að freista þess, ef hæstv. ráðherra er tilkippilegur til að svara, að fá svar við því hvers vegna skólunum er ekki treystandi og þá jafnframt hvort hann vilji svara því sem ég kom hérna inn á: Er of mikil valdbeiting að fara að eiga sér stað hvað varðar innra starf skólanna? Það er viðkvæmt mál fyrir skólastjórnendur og skólasamfélög að stigið sé þannig inn í.