157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:42]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég verð bara að segja það að ég átti nú ein fjögur börn sem fóru í Öldutúnsskóla þannig að ég þekki vel til þar líka. Ef við værum að setja reglurnar nákvæmlega eins og þær voru í Öldutúnsskóla, værum við þá að gera eitthvað rangt? Hv. þingmaður segir að þetta séu réttu reglurnar, að þetta hafi virkað í Öldutúnsskóla og bara verið flott. Af hverju ætti þá reglugerðin ekki að virka ef við byggjum á henni samræmdar reglur fyrir alla skóla? Ætti hún þá ekki líka að virka flott fyrir alla hina skólana? Ég sé enga forræðishyggju í þessu. Ég er bara að bregðast við ákalli um að hafa samræmi í þessu og líka að taka þetta samtal við börnin, búa til símafrí fyrir þau, sem ákall er um, að tala við foreldrana, Kennarasambandið og skólasamfélagið í heild sinni til þess að samræma verklag þannig að allir geti verið sáttir við að börnin fái símafrí í skólum.