grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég nefndi það einmitt að reglurnar sem settar voru af skólasamfélaginu í Öldutúnsskóla virkuðu vel þar. Það er einmitt mergurinn málsins: Leyfum skólunum og skólasamfélaginu á hverjum stað, hvort sem er skólanum eða sveitarfélaginu öllu, að setja sínar eigin reglur. Ég veit að við erum ekki að fara að komast að samkomulagi hér í þessum sal í dag um þetta en þarna bara greinir okkur á um hvort ein ríkisleið sé málið og það sem við eigum að setja púður í, öll þessi viðtöl og allt þetta samstarf sem á að fara í eftir á. Kannski væri tímanum betur eytt í eitthvað annað gagnvart námi og kennslu. Ég held að þetta sé bara farið að virka mjög vel. Við getum leiðbeint þeim sem óska eftir stuðningi en leyfum skólasamfélaginu á hverjum stað að setja sér sínar eigin reglur og stígum ekki með slíku valdi inn í innra starf skóla.