grunnskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég skildi það kannski ekki alveg fullkomlega en ég tel sem sagt að samræmd próf einu sinni á ári séu mjög mikilvæg, séu mjög mikilvægur mælikvarði á stöðu barns, stöðu skóla og stöðu sveitarfélags til framþróunar í skólastarfi og skólaþróun á hverjum stað en fyrst og fremst fyrir barnið. Það voru kannski einhverjir ákveðnir gallar á því, það má alltaf horfa á og endurskoða hlutina. En, já, samræmd próf (AMJ: Námsumhverfi.) Námsumhverfi, já, mér finnst það hvernig skólar ákveða notkun á símum innan skólatíma ekki sambærilegt við það sem komið er inn á hér, hvernig og hvaða próf eru tekin. Mér finnst það bara mjög ósambærilegt. Ég ætla ekki að fara dýpra í það en mér finnst bara ekki hægt að bera þetta saman. Þetta er dálítið svona „epli og appelsínur“ samanburður.