157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:53]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Til að leiðrétta misskilning ef ég hef komið þessu eitthvað óskýrt frá mér þá er ég svo sannarlega ekki að að kalla eftir samræmdri stefnu. Ég var að vitna til þess að Samtök iðnaðarins hefðu bent á að það mætti búa til heildstæða stefnumótun í því hvernig við notum þessi tæki og það má vel vera að það sé gott og gilt. Hvað varðar ábyrga notkun og jafnræði meðal barna kom líka fram í umræðum hér fyrr í dag að börn væru mjög misjafnlega í stakk búin hvað tækjakost varðar. Ég vænti þess að Samtök iðnaðarins séu að vísa til þess en ætla ekki að tjá mig meira um þeirra umsögn að öðru leyti en því að ég var að vitna í umsagnir sem hafa komið og einnig til þess að kallað er eftir alls konar öðrum hlutum til skoðunar í stað þess að mikilli orku sé eytt í að búa til einhverjar samræmdar ríkisreglur um símanotkun þegar þær eru bara til í langflestum skólum og í sveitarfélögum núorðið. Það var það sem ég var fyrst og fremst að segja, þ.e. hvort tímanum væri betur varið í annað til að efla nám og aðstöðu barna.