grunnskólar.
Frú forseti. Ég biðst forláts, hafi ég misskilið hv. þingmann og afstöðu hennar til þess sem ég taldi mér trú um að væri jákvæð afstaða gagnvart því ákalli sem mér finnst vera rétt og eðlilegt af hálfu Samtaka iðnaðarins hvað varðar stafræna námsgagnagerð. Hitt er annað mál og mér þykir mjög mikilvægt að benda á það og vekja athygli hv. þingmanna á því, fyrst hv. þingmaður talar hér um vilja löggjafans til að stíga inn í innra starf skólanna, að það er ekki hafið yfir vafa hvort einstakur skóli hafi rétt til þess að ganga mögulega á eignarréttindi einstaklinga. Hér tala ég um stjórnarskrárvarin réttindi og mér er það ljúft og skylt gagnvart þingmanni flokks sem kennir sig við frelsi einstaklings og ekki síst eignarrétt, að nefna að slíkar valdboðsheimildir þurfi að vera alveg skýrar. Það er rétt að það komi frá ráðherra sem hefur þá skýrt umboð frá löggjafanum í skjóli laga áskilnaðarreglunnar sem gildir í þessu samfélagi, að slík tímabundin eignaskerðing, sem felst mögulega í því að taka síma af barni meðan á skóladegi stendur, sé algjörlega lögmæt. Um það liggur vafinn. Því hef ég mjög ítrekað kynnst í fyrri störfum mínum sem lögfræðingur hjá Reykjavíkurborg og sem stafrænn stefnumótunaraðili í námsumhverfinu. (Forseti hringir.) Ég held að það hljóti að vera farsælt fyrir hv. þingmenn að kynna sér betur þau vandamál sem sannarlega hafa skapast í skólastarfinu (Forseti hringir.) vegna þess að reglurnar eru í innbyrðis ósamræmi.