157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[15:58]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég ætla bara rétt að byrja kannski á mikilvægasta málinu hér í dag og árétta fyrir hæstv. ráðherra að það var að sjálfsögðu Marteinn Mosdal, ekki Ragnar Reykás. Þú veist af því, vinur minn. Nei, nei, þetta var nú svona — maður verður líka að vera léttur.

Ég ætla líka að byrja á, áður en ég held áfram, að taka til baka það sem ég sagði áðan þegar ég sagðist vera sammála tilgangi þessa frumvarps. Það er ekki rétt. Ég er sammála tilgangi þess sem við erum að tala um, þ.e. að reyna að takmarka símanotkun með einhverjum hætti í skólum en hvort þetta sé rétt leið — ég er heldur ekki að segja að ég sé eitthvað ósammála, ég ætla bara að reifa nokkra punkta sem ég var með og líka út frá umræðunum hér í dag.

Við skulum alveg hafa það á tandurhreinu að þetta er að sjálfsögðu forræðishyggja í sinni tærustu mynd og svo er það bara stjórnvalda hverju sinni að ákveða hvað við ætlum að gera. Það er vinstri stjórn í landinu núna, þar er forræðishyggjan ráðandi. Ef þetta verður á endanum leiðin þá er það bara eitthvað sem við í minni hlutanum og þeir sem þurfa að lúta þessum lögum þurfa að glíma við.

En við skulum bara hafa það alveg á hreinu. Það virðist sem svo að skólasamfélagið sé frekar ósamstiga í afstöðu sinni gagnvart því hvernig á að gera þetta því það virðist vera alveg ljóst að það er ekki ánægja innan skólasamfélagsins með þessa lausn. Það er alveg klárt. Maður hefur lesið á samfélagsmiðlum frá þeim sem hafa verið og voru í þessari vinnu með hæstv. ráðherra að fulltrúar kennaranna eru búnir að skera sig út úr þessu því að þeir eru bara ekki sammála því að það eigi endilega að taka síma út úr skólum. Þá er ég ekki að segja að ég sé sammála þeirri nálgun en það er alla vega augljóst, að því er virðist á þessu samráði sem er búið að vera í gangi, að það er alls engin samstaða þarna. Mögulega er það ástæðan fyrir því að ráðherra vill hreinlega taka algerlega valdið til sín.

Ég reifaði hérna áðan og ætla að gera aftur hér, þannig að það sé á skrá í þessari ræðu, eitt sem stendur í frumvarpinu, með leyfi forseta:

„Flestir grunnskólar hér á landi hafa sett sér reglur eða viðmið um notkun farsíma í grunnskólum. Samkvæmt könnun umboðsmanns barna árið 2024 höfðu allir grunnskólar sem svöruðu sett sér reglur eða 126 talsins; 45% þeirra leyfa ekki farsíma, 52% leyfa farsíma með takmörkunum og 3% leyfa farsíma án takmarkana.“

Sem þýðir að 97% skóla leyfa ekki farsíma, eða með takmörkunum, og um 3% leyfa þá. Því spyr ég: Hver er þá í raun og veru tilgangurinn með þessu? Eins og ég spurði hæstv. ráðherra áðan. Þetta er náttúrlega rannsókn sem er gerð og ef hún er sönn þá bara spyr ég: Hver er þörfin á þessu? Því að þetta virðist alveg virka, þ.e. skólarnir nýta sitt vald til þess að setja sér þessi mörk og vilja greinilega hafa valdið hjá sér ef marka má að þeir virðast ekki vilja vera í miklu samráði eða eru alla vega ekki sammála nálgun ráðuneytisins, skulum orða það þannig. Ef þetta er ekki rétt og þetta er bara það mikið vandamál í skólum og skólayfirvöldum er ekki treystandi fyrir þessu þá verður hæstv. ráðherra bara að segja það, af því að við erum komin á þann stað með menntakerfið okkar yfir höfuð að við getum ekki verið bara í einhverjum duttlungum og feluleik. Ef mennta- og barnamálaráðuneytið telur að skólayfirvöldum og fólkinu sem er í skólunum, á gólfinu allan daginn, sé ekki treystandi fyrir því að framfylgja þessu þá verður bara segja það og þá getum við tekið ákvörðun út frá því síðan seinna.

Í heildina myndi ég alltaf vilja auka og ýta undir sjálfstæði skólanna en ekki ýta undir miðstýringu. En ég heyri að það er á hinum vængnum svo sannarlega verið að ýta undir miklu frekari miðstýringu. Maður spyr: Hver er þörfin, aftur, á því að ríkið sé að stíga inn í þessa miðstýringu? Ef það ríkir ekki traust þarna þá verður bara að segja það.

Það var áhugavert svar sem hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir fékk hér varðandi Öldutúnsskóla þar sem það virtist sem svo að hér væru báðir aðilar, bæði hv. þingmaður og hæstv. ráðherra, ánægðir með það sem hafði verið í gangi þar á sínum tíma. Þar setur skólinn sér einmitt reglur og viðmið, framfylgir þeim og það virtist ganga vel ef ég skil það rétt. Þar voru sérfræðingarnir sem eru að sjá um börnin okkar og börnin hennar Rósu og Guðmundar á þeim tíma, og væntanlega enn þá, að nýta sér það að þau vissu hvað væri í gangi hverju sinni og ef það gekk svona vel, hvað er þá málið?

Svo er þetta líka spurning um hvað á að gera. Það er ástæða fyrir því að kennarasamfélagið er að einhverju leyti búið að fara svolítið út úr þessu samtali því að kennarar eru bara ekkert algerlega sammála þessu. Skólarnir hafa líka verið að bregðast við breyttum tímum. Við höfum séð fullt af fréttum, það er ekki langt síðan maður sá viðtal við, hvort það var ekki skólastjórinn í Hagaskóla, þeir voru búnir að gera miklu strangari viðurlög við símanotkun þar, sérstaklega í frímínútum. Ég held að við séum alveg sammála um að þetta hafi náttúrlega ekkert inn í skólastofurnar að gera en sérstaklega eins og í frímínútum var búið að búa í haginn fyrir börnin að gera eitthvað fyrir utan skólastofuna, það var búið að rusla inn pingpong-borðum og alls konar þannig að það væri eitthvað til örvunar í frímínútum líka. Við sjáum að á Sauðárkróki t.d. er íþróttahúsið alltaf opið í frímínútum, meira að segja nettengdar tölvur því það þarf ekkert endilega að taka fólk algerlega út úr netheimum en það er bara í frímínútum, ekki í tímunum sjálfum. Mér finnst líka aðeins verið að byrja á öfugum enda í þessu, við ættum mögulega að hugsa um okkur sjálf en það er kannski umræða fyrir annan dag.

Svo varðandi kostnaðarhliðina á þessu. Ég efast ekkert um að hún sé eitthvað svakaleg en hvert er ábyrgðarhlutverk hvers og eins? Þetta er það sem mér finnst vanta í þetta frumvarp. Ég átta mig á því að þetta er frumvarp til að búa til regluheimildir og það á eftir að fara í frekari vinnu en einhver þarf að taka símana, einhver þarf að fylgjast með þessu. Hvað ef einhver er með síma? Á að vera að elta þá uppi í öllum frímínútum ef einhverjir guttar vilja fara í Minecraft eða eitthvað? Mér finnst þetta svo ófullkomið. Þess þá heldur skil ég ekki af hverju ríkið á endilega að koma inn í þetta, af því að þeir bara setja blátt bann við því að það séu símar í skólum. Ef þið talið við kennara þá eru símar ekki upphaf og endir alls ills, bara alls ekki, þeir eru truflun inni í skólastofunni, já, en síðan er búið að vera að benda á alls konar hluti, eins og umsagnir frá Öryrkjabandalagi Íslands sem bendir á að það eru krakkar sem þurfa hreinlega á símunum að halda í náminu.

Opnar þetta ekki líka á svakalega vinnu fyrir þá sem þarf að — ég veit ekki hvort það er þá ráðuneytið sjálft, eða sveitarfélögin sem munu þá endanlega þurfa að sjá um þetta, endalausar umsóknir um undanþágur. Hverjar verða undanþágurnar? Ég ætla nú rétt að rétta giska að það verði t.d. fyrir börn með einhverja þroskahömlun eða fötlun sem þurfa virkilega á þessu að halda því að þetta er það sem kennarar segja. Þetta er það sem kennarar skilja ekki við þetta innstig ríkisvaldsins inn í þetta því að mennta- og barnamálaráðherra eða ráðuneytið er ekki inni á gólfinu. Þetta er það sem ég geld varhuga við þegar kemur að þessari forræðishyggju og að reyna að miðstýra þessu þaðan.

Sama með tækjakostinn ef á að fara að taka símana alveg út, af því að ég er alveg sammála því sem hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom inn á áðan, það að læra að lesa og skrifa með blaði og blýanti er náttúrlega bara miklu meira örvandi fyrir heilann og þarf ekki að lesa nema eina rannsókn til að átta sig á því að við erum eiginlega farin hring með þetta. Einu sinni voru tölvur það besta og kennarar voru orðnir einhverjar risaeðlur ef þeir vildu ekki vera með helst bara iPada ofan í augunum á börnunum en það er víst ekki svo. En munu þá allir krakkar hafa aðgang að sama tækjakosti þegar kemur að — af því að á einhverjum tímapunkti þarf að fara að kenna þeim á tölvur og kenna þeim ábyrga internetnotkun. Það er orðinn enginn smá hluti af því að vera þjóðfélagsþegn í dag að vita upp á internetið býður og hvar við viljum alls ekki að krakkarnir okkar séu.

Þetta er svona það helsta sem ég vildi reifa í þessu. Mér finnst þetta svolítið erfitt mál að tala um því að ég er aftur að sjálfsögðu bara mjög sammála grunnhugmyndinni en miðstýringuna skil ég ekki, næ ekki alveg hvernig framkvæmdin á að vera og mér finnst þetta slit kennaranna og skólastjórafélagsins og umsagnir þar bera þess merki að þetta sé vanhugsað og mögulega sett inn þvert á vilja kennaranna. Nú er ég að miða við það sem stendur. Ég get náttúrlega hér sem þingmaður bara miðað við það sem ég les. Af því að maður vill ekki vera að bera einhverjar umsagnir upp á borð þá er ég aðallega að vísa í Skólastjórafélag Íslands sem harmar að ekki hafi verið leitað vilja og viðhorfs skólasamfélagsins, eins og það er orðað orðrétt í umsögn þess.

Ég held að fleira hafi það ekki verið en kannski rétt í lokin vil ég taka undir það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, sem er nú ekki hér lengur, reifaði við hæstv. ráðherra áðan, til að enda þetta á mjög reiðum tóni. Hvar eru málin um menntun barna? Símar, þetta framhaldsskólamál um daginn, það er verið að boða hér eitthvert stjórnsýslustig til að taka enn þá meiri völd af skólunum. Hæstv. ráðherra sagði í — hvort það var í andsvari fyrir nokkrum vikum, jafnvel mánuðum síðan, hvort það hafi verið hv. þm. Jón Pétur Zimsen sem var að kalla eftir þessu, að það ætti að koma með fá mál en góð mál. Ókei, ég held við getum öll tekið undir það. En þau eru fá og snúast ekki um menntunina beint. Hvað er þá menntamálaráðuneytið að gera?