157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:10]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu sem ber með sér að efnislega sé kannski ekki ósætti um að það sé í lagi að setja símanotkun barna á skólatíma einhvers konar skorður. Ég held að engan langi til að vera vitlausum megin í sögunni hvað það varðar eða hafa enga leiðsögn um hvað eigi að gera við slíkt einkatæki meðan á kennslu stendur eða á skólatíma. Hins vegar heyri ég það ítrekað núna af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fyrst skólarnir hafi bara farsællega sett sér reglur sé inngrip löggjafans óþarft. Þannig skil ég málflutning Sjálfstæðisflokksins hér í dag.

Ég vil ítreka það sem ég sagði í andsvari mínu við hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur hér áðan: Slíkar reglur eru ekki nægilega sterkt tæki til þess að koma að notum þegar raunverulegur lögfræðilegur ágreiningur skapast milli heimilis og skóla. Ég hef leyst úr ótal ágreiningsefnum sem lögfræðingur hjá sveitarfélagi þar sem foreldrar skrifa, í þessu tilfelli til Reykjavíkurborgar, og vefengja vald einstaks kennara til þess að annars vegar taka símtækið tímabundið af barni og hins vegar að setja einhvers konar skorður.

Ég spyr hv. þingmann: Hvernig eiga lögfræðingar að leysa úr þessu álitaefni í núverandi lagaumhverfi þegar löggjafinn hefur ekki sett sér eina einustu stefnu í málinu?