grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur kærlega fyrir svarið. Nú er ég ekki lögfræðingur — vó, það vantar ekki stælana í þennan hv. þingmann. Á endanum snýst þetta ekkert um það, finnst mér. Við erum bara að tala um að þú vilt, afsakið, hv. þingmaður vill bara fá þetta inn í ríkisvaldið. Er það þá bara til að leysa allt saman að ráðuneytið, eða sveitarfélögin væntanlega, af því að þau hafa þá valdið, er það þá bara upphaf og endir þess hvernig leysa skuli úr afturvirkum ágreiningi þegar eitthvað svona kemur upp? Ég skil alveg það sem hv. þingmaður er að segja en nú er ég bara að tala um framkvæmdina á þessu. Hafa umkvartanir foreldra meiri áhrif eða skiptir hv. þingmenn meira máli hvernig þetta gerist í lögfræðilegum tilgangi eftir á, að skólarnir missi vald til ráðuneytisins bara út af þessu? Hvað þá með allt hitt sem ég var að segja um framkvæmdina og hvernig skólarnir hafa gert þetta sjálfir, ef þeir fá ekki að marka sína eigin stefnu og fá ekki að líta á hvernig sinn skóli er? Hv. þm. Anna María Jónsdóttir var bara að tala rétt áðan um Fellaskóla. Það er gríðarlegur munur á Fellaskóla og mörgum öðrum skólum, eins og t.d. Réttarholtsskóla, sé litið til samsetningar nemenda og alls þess. Það er að mínu mati mjög erfitt að setja sér einhverja stefnu um að löggjafinn stígi þarna inn og skólarnir missi þetta vald sitt, sem síðan kann að skapa meiri ágreining.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á að gæta fyllstu kurteisi í garð annarra hv. þingmanna.)