157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:27]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Þetta er stórmerkileg umræða sem mig langar mikið að fá að blanda mér í. Mér er búinn að vera smá vandi á höndum því ég hef ekki verið hrifinn af bönnum. Ég man nú bara eftir því sem krakki að mikið var varað við sjónvarpi, að sjónvarp væri hættulegt og að það væri hættulegt að börn væru mikið að horfa á sjónvarp. Það átti að geta ruglað í hausnum á manni, grafið undan alls konar íslenskum gildum og jafnvel komið inn einhvers konar ofbeldishneigð, sérstaklega hjá strákum sem sæju fyrirmyndir í einhverjum hasarmyndum. Svo man ég að á tímabili var þetta líka talið skemma sjónina. Sjónvarp var talað svolítið mikið niður. Jafnvel varð til séríslenskt orð sem margir kannast við, imbakassi. Ég horfði mikið á sjónvarp og lét þetta eins og vind um eyru þjóta og það gerði mér ekkert nema gott. Margt það dýrmætasta sem ég hef lært í lífinu hef ég frá sjónvarpinu þannig að strax þegar ég fór að heyra þessa hugmynd um að fara að banna snjalltæki fór ég í einhvers konar sjálfkrafa læsingu gagnvart þessu: Nei, er það? Síðan gerist það, af því að maður náttúrulega vinnur við að tala um þetta og kynna sér þetta, að ég hef kynnt mér þetta eins og ég var kannski ekki alveg búinn að gera áður. Núna er ég algerlega sammála þessu og mér sýnist einsýnt að þetta sé nákvæmlega það sem næstum öll siðmenntuð lönd í heiminum eru að gera, eru búin að gera eða ætla að gera með einum eða öðrum hætti. Hvort þetta sé eitthvert vafamál og hvort þurfi eða ætti að gera þetta finnst mér því ekki lengur eiga við. Þetta er bara eitthvað sem þarf að gera. Hvernig á hins vegar að gera þetta? Ég er mikill aðdáandi Bandaríkjanna og mér finnst tvö lönd skara fram úr í heiminum, eða þrjú lönd, Ísland og svo tvö önnur sem eru Svíþjóð og Bandaríkin. Ég hef miklar mætur á Bandaríkjunum og sérstaklega Texas-fylki þar sem ég var svo heppinn að fá að dveljast um tíma. Fylkið setti nýverið lög, sem tóku bara gildi núna 1. september, sem banna notkun snjalltækja í skólum. Mér fannst svo athyglisvert að þegar fylkisstjórinn í Texas, Greg Abbott, með leyfi forseta, undirritaði lögin lagði hann mikla áherslu á að með þessu frumvarpi myndi nemendum í Texas verða tryggt næði til að ná árangri í skóla án truflana. Hann sagði jafnframt, með leyfi forseta — hann talar ekki íslensku en ég hef þetta eftir honum á íslensku:

„Sérfræðingar hafa útskýrt að snjallsímar og samfélagsmiðlar hafa áhrif á andlega heilsu barna. Ef við ætlum að vera númer eitt í menntun mun það krefjast óskiptrar athygli nemenda í kennslustofu.“

Ég er bara algerlega sammála þessu og mér finnst að það þurfi að skilgreina þetta vel, að þegar við tölum um snjalltæki eigi það líka að ná til snjallúra. Eins og ég er lítið hrifinn af bönnum nema þau séu virkilega nauðsynleg og þjóni göfugum tilgangi vil ég að þegar á annað borð á að setja bönn séu það góð bönn. Ég vil að þau séu virkilega góð. Ætli maður á annað borð að banna eitthvað á að gera það almennilega, ekki vera með einhver hálfvelgjubönn því slík bönn eru verri en ekkert bann vegna þess að þau skapa áður óþekkt flækjustig, setja fólk í alls konar óþægilegar stöður og skila engum árangri. Ég vil vara við orðalagi eins og „leitast skal við“ og „eins og fremst er kostur“ og einhverju svona. Þetta þarf bara að vera skýrt, sem sagt að þegar eitthvað er bannað sé tiltekið hvað er bannað. Hvort það er gert með þeim hætti að sett sé regnhlífarbann sem skólastjórnendur hafi síðan möguleika á að útfæra finnst mér bara matsatriði. Varðandi undanþágur frá banni hefur komið fram í umræðum hér í dag að líta þufi til ýmissa sjúkdóma. Ég heyrði t.d. í dag nefnda sykursýki. Til eru ótal sjúkdómar þar sem fólk nær betri líðan og lækningu í gegnum snjalltæki og sú tækni er náttúrlega líka alltaf að aukast og vaxa. Sem heyrnarskertur einstaklingur stjórna ég svolítið heyrnartækjunum mínum í gegnum símann minn og ef og þegar ég er að stilla tækin, t.d. í leikhúsi og fólk er að horfa á mig með meinandi augnaráði, ulla ég á það vegna þess að ég má þetta. Svo er líka dyslexía sem hefur verið kölluð lesblinda. Það þarf að taka tillit til frávika þar sem börn þurfa einhverra hluta vegna á snjalltækjum að halda en það þarf að vera algjörlega skýrt. Það á ekki að vera miði frá foreldrum eða forráðamönnum eða eitthvað slíkt. Það á að vera læknisvottorð og það á að vera algjörlega skýrt því annars missum við þetta bara strax úr höndunum.

Svo langar mig að spyrja aðeins út í notkun á spjaldtölvum og lesbrettum við nám, sem eru þá ótengd internetinu en hafa að geyma gögn sem börn nota við nám. Nú þekki ég bara ekki tæknilega útfærslu á því hvort hægt sé að vera með lokuð netkerfi í skólum, námsnet þar sem þú hefur aðgang að námsefni á kannski þennan opna hátt sem margmiðlun býður upp á, þ.e. skemmtilegar leiðir til að læra með t.d. leikjum og öðru slíku. Ég bara þekki það ekki og heldur ekki svona græjur og GSM-blokkara, einhvers konar græjur og varnir sem hægt væri að setja upp. Mér skilst að það sé svolítið málum blandið hversu gagnlegt það sé og að hægt sé að komast hjá því. Að auki finnst mér að það eigi að vera einhver viðurlög. Það er alltaf mikilvægt þegar maður er að setja einhver bönn að ef einhver brýtur bannið séu einhver viðurlög. Ég velti fyrir mér hver þau eigi að vera og ég varð reyndar svolítið spenntur fyrir einni lausn sem einkaskóli í Houston hefur tekið upp. Þar hafa skólastjórnendur tekið sér það bessaleyfi að ef þeir finna snjalltæki á nemendum er þeim fargað. Það er kannski eitthvað sem við ættum að skoða. Mér finnst þetta bara bráðnauðsynlegt og tímabært. Við viljum að krakkarnir okkar nái árangri og séu ekki trufluð að óþörfu, að það sé bara svolítið helg stund að læra og stunda nám. Það er leikur að læra en sá leikur er mér líka kær og hann getur ekki verið manni alveg kær ef maður er bara að pæla í einhverju öðru á meðan. Ég styð þetta því heils hugar. Mér finnst þetta flott framtak og hrósa ráðherra fyrir framsýni og hugrekki að stíga fram með þetta frumvarp, en það þarf að vera mjög skýrt. — Takk fyrir.