157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var skemmtileg að vanda. Ég hélt að hv. þingmaður væri með mér í frjálshyggjuarminum hér í þessum ágæta þingsal en ég heyri líka að þegar á að banna eitthvað á raunverulega að banna það, sem mér finnst svolítið fyndið, að ef maður ákveður að eitthvað skuli banna geti maður ákveðið að banna fyrir aðra. Í gegnum ræðuna hjá hv. þingmanni fannst mér hann tala fyrir því að þetta þyrfti að vera miklu skýrara. Hér þyrfti hreinlega bara að banna síma í skólum og vera svo með einhverja refsingu við því. Þessi frumvarpsögn sem hér er, því þetta eru nú bara tvær greinar með örfáum setningum, gerir það ekki. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á í ræðu sinni er ekki verið að banna síma í grunnskólum. Það er verið að heimila ráðherra að setja í reglugerð að þar bætist við reglur um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Það er allt sem er verið að gera. Ég sjálf velti því fyrir mér hvort raunverulega þurfi að gera þetta því að flestir skólar hafa nú þegar tekið upp einhvers konar símabönn. En ég bara spyr þá hv. þingmann: Vill hann ekki ganga miklu lengra en það sem stendur í þessu frumvarpi? Miðað við það sem fram kom í ræðu hv. þingmanns er honum miklu meira umhugað um að það ætti bara að banna og að þetta sé skýrt frá löggjafans hendi, hvað megi og hvað megi ekki. Telur hv. þingmaður raunverulega að það sem hér er sé skýrt?