157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:42]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir spurninguna og mjög góðar hugleiðingar. Jú, eins og kemur fram finnst mér að það eigi að ganga lengra. Mér finnst bara heilbrigð skynsemi að þegar okkur finnst ljóst að eitthvað þurfi að banna vegna þess að það er bara ekki hollt eða hreinlega hættulegt, þá eigum við í sumum tilfellum bara að banna það með skýrum hætti. Mér finnst þetta skref í rétta átt en síðan, eins og ég segi líka, þekki ég ekki alveg eða kann ekki alveg á þær lausnir sem búa í tækninni. Það gæti verið eitthvað sem ég held að sé hugsanlega flókið sem er kannski bara mjög einfalt, ég bara veit það ekki. — Takk fyrir.