157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:43]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að velta þessum þáttum fyrir sér því augljóslega er stuðningur hér við að banna bara hreinlega símanotkun í grunnskólum. Það er ekki það sem þetta frumvarp sem hér liggur fyrir er að gera þannig að ég hygg að hv. allsherjar- og menntamálanefnd muni skoða það hvort ganga eigi lengra og kveða skýrt á um það í lögum að símar og snjalltæki séu bönnuð. Sjálf ætla ég að efast um að ég myndi styðja slíkt frumvarp.

Ég sagði áðan í andsvari að ég teldi brýnt að takmarka mjög skjátíma barna og ég held að það sé fínt að síminn sé í algerri hvíld þegar börn eru í kennslustund. Ég held að það sé bara mjög mikilvægt. Hv. þingmaður nefndi þó líka undanþágurnar sem þurfa að vera til staðar en samanber það sem hv. þingmaður sagði áðan þyrfti það að vera algerlega skýrt þannig að til að mynda börn sem glíma við lesblindu þyrftu þá bara að fá læknisvottorð þar um. Þarna er ég ekki algerlega sammála, hv. þingmaður, og stendur nú hér móðir sem á tvö lesblind börn. (Forseti hringir.) Oft og tíðum er erfitt að greina þetta en snjalltækin geta stundum hjálpað. Er það raunverulega svo að hv. þingmaður telji að það væri börnum fyrir bestu að banna algerlega síma, (Forseti hringir.) veita bara undanþágu ef læknisvottorð segir til um slíkt? Heldur hv. þingmaður (Forseti hringir.) að slíkt gangi hreinlega upp í samspili okkar heilbrigðiskerfis og menntakerfis?

(Forseti (): Forseti vill minna hv. þingmenn á ræðutímann sem er ein mínúta í þessari umferð.)