157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:47]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar og spurningu. Það sem hefur kannski aðallega valdið mér skoðanaskiptum er, eins og ég sagði í ræðu minni hér áðan, að ég hef lesið mér betur til um þetta heldur en ég hafði gert áður. Áður byggði ég skoðun mína ekki á miklum heimildum og það hefur margsinnis komið fram opinberlega að ég hafi skipt um skoðun. Mér finnst það bara eðlilegt verklag heilbrigðrar hugsunar að þegar þú ert kominn með rök þá skiptir þú um skoðun á einhverju sem þú hafðir ekki rök fyrir áður.