157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

grunnskólar.

232. mál
[16:48]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svar við andsvari. Ég er sammála hv. þingmanni um að menn eigi alveg að geta skipt um skoðun ef fyrir því eru sterk rök. Það sem ég vil þá spyrja um í seinna andsvari mínu varðar það að hv. þingmaður er líklegast bara eins og langflestir aðrir og að menn eru tilbúnir að mynda sér skoðun út frá einhverju sem er ekki endilega mjög ígrundað. Þegar menn fara síðan djúpt í málin komast þeir kannski að einhverju öðru. Sá sem hér stendur ræddi fyrir tíu árum um takmörkun á notkun snjallsíma, árið 2015. Það mætti mikilli andstöðu og fyrir vikið hefur þetta fengið að malla áfram í tíu ár án almennilegra aðgerða. Fyrir vikið höfum við í raun tapað heilli kynslóð á altari tæknirisanna, svo ég gerist dramatískur. (Forseti hringir.) Ég spyr því bara: Hvernig getum við komið upplýsingum fyrr í umferð í stað þess að það þurfi að taka samfélag okkar svona langan tíma (Forseti hringir.) og að við missum þá einhver börn í leiðinni á vondan stað?